Þessi kjúklingabaka er guðdómlega góð og kemur úr smiðju Valgerðar Grétu Gröndal matarbloggara, betur þekkt sem Valla, og er fullkominn fjölskylduréttur. Það má líka með sanni segja að rétturinn sé með einfaldari kjúklingaréttum sem hægt er að útbúa og að auki er hann stútfullur af próteini.
Það er hægt að flýta enn meira fyrir sér og nota kjöt af tilbúnum kjúklingi sem hægt er að grípa með sér í mörgum verslunum líkt og Valla gerir hér eða jafnvel nota afganga sem gætu leynst í kælinum. Kotasælan og rjómaosturinn sjá til þess að rétturinn sé extra djúsí og próteinríkur.
Mexíkósk kjúklingabaka með kotasælu
- 500 g kotasæla
- 100 g rjómaostur með svörtum pipar
- 1 bréf tacokrydd
- 350 g eldaður kjúklingur, rifinn
- 85 g maískorn, má sleppa
- ½ rauð paprika
- 7 cm blaðlaukur, græni hlutinn
- 50 g rifinn ostur
Ofan á:
- 100 g rifinn ostur
- 50 g mexíkósk rifin ostablanda
- Nokkrar nachosflögur, muldar.
- Ferskt kóríander, má sleppa
Aðferð:
- Hitið ofninn í 210°C blástur.
- Rífið niður kjúklinginn og skerið grænmetið. Valla notaði eldaðar kjúklingabringur en það er einnig ljómandi gott að nota kjöt af tilbúnum elduðum kjúkling.
- Setjið kotasælu, rjómaost og taco-krydd saman í skál og blandið saman með töfrasprota.
- Blandið kjúklingnum, rifna ostinum og grænmetinu saman við kotasælublönduna.
- Smyrjið út í eldfast form og toppið með rifnum osti, mexíkóskri ostablöndu og muldum nachos-flögum.
- Bakið í ofni í 25-30 mínútur.
- Takið fatið út og stráið söxuðu fersku kóríander yfir ef vill.
- Berið fram með hrísgrjónum, nachosflögum, maískorni, salsa, sýrðum rjóma og ferskum kóríander.