Þessi fiskréttur er einstaklega frumlegur þar sem makkarónum og salami er blandað saman við fiskinn með dásamlegri útkomu. Ostasósan er svo ljúffeng og gerir réttinn saðsaman. Næstum því eins og haf og hagi.
Heiðurinn af uppskriftinni á Erna Sverrisdóttir matgæðingur og er hún gerð fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn.
Ofnbakaður fiskur í ostasósu með makkarónum og salami
- 1 box kirsuberjatómatar (um 250 g)
- ólífuolía eftir smekk og þörfum
- sjávarsalt og svartur pipar eftir smekk
- 5 dl makkarónur
- 100 g ítölsk salami eða pepperóní, saxað
- 600 g þorskhnakkar eða annar hvítur fiskur, skorinn í stóra munnbita
- 2 msk. smjör
- 2 msk. hveiti
- ½ l matreiðslurjómi
- 1 ½ dl parmesanostur, fínrifinn
- ¼ tsk rauðar piparflögur (má sleppa ef vill)
- múskat eftir smekk
- 2 msk. sítrónusafi
- 1 dl basillauf, gróft söxuð
- 100 g rifinn gratínostur
Aðferð:
- Stillið ofninn á 180°C.
- Skerið tómatana í tvennt og raðið á bökunarplötu klædda bökunarpappír.
- Setjið örlitla ólífuolíu yfir, saltið og piprið.
- Bakið í 30 mínútur.
- Takið til hliðar og geymið.
- Sjóðið makkarónurnar þar til næstum því soðið.
- Hellið vökvanum af og látið kalt renna á pastað þar til kælt.
- Látið vatnið renna vel af.
- Smyrjið eldfast mót með smjöri og hellið makkarónunum á fatið.
- Blandið salami, ofnbökuðu tómötunum og fiskinum varlega saman við.
- Saltið og piprið.
- Bræðið 2 msk. af smjöri í potti og blandið hveitinu saman við.
- Hrærið stöðugt.
- Þegar hveitiblandan sýður hellið þá matreiðslurjóma saman við smátt og smátt.
- Hrærið.
- Þegar sósan tekur að þykkna og sjóða, takið af hitanum.
- Setjið piparflögur, parmesanost og basil saman við.
- Smakkið til með múskati og sítrónusafa.
- Hellið yfir makkarónurnar og fiskinn.
- Sáldrið gratínosti yfir, setjið inn í ofn og bakið í um það bil 30 mínútur.
- Berið fram með því sem hugurinn girnist og njótið.