Matvælastofnun vill vara neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir soja að neyta ekki Black garlic maríneraðs kjúklings frá Stjörnugrís en varan er vanmerkt að hún innihaldi soja en soja er ofnæmisvaldur. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna að því er fram kemur í tilkynningu frá MAST.
Einungis er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:
Vörumerki: Stjörnufugl
Vöruheiti: Kjúklingur í black garlic
Lýsing á vöru: Hrár kjúklingur í black garlic marineringu.
Framleiðandi: Stjörnugrís
Rekjanleikaupplýsingar: Lotunúmer: 9999-25066
Best fyrir: 30.03.25
Strikanúmer: 2107211009346
Geymsluskilyrði: kælivara
Dreifingarlisti: Costco, Kauptún 3, 210 Garðabær
Verslunin hefur haft samband við þá sem hafa keypt kjúklinginn og geta þeir fengið endurgreitt.