Lauflétt sætkartöflumús sem steinliggur með öllu

Þessa sæta kartöflumús er auðvelt að gera auk þess sem …
Þessa sæta kartöflumús er auðvelt að gera auk þess sem hún er svakalega góð. Ljósmynd/Hanna Thordarson

Þessi lauflétta sæt­kart­öflumús á án efa eft­ir að falla í kramið jafnt hjá ung­um sem öldn­um. Heiður­inn af upp­skrift­inni á mat­gæðing­ur og kera­miker sem held­ur úti sínu eig­in mat­ar­bloggi.

Eins og Hanna seg­ir þá ork­ar kannski tví­mæl­is að kalla hana lauflétta þar sem hún er stút­full af hita­ein­ing­um en það skipt­ir kannski ekki öllu fyr­ir yngstu og elstu kyn­slóðina. Hún er mjög auðveld að búa til og dá­sam­lega góð á bragðið. Sjálf er ég búin að prófa hana og því­lík dá­semd að njóta.

Lauflétt sæt­kart­öflumús sem stein­ligg­ur með öllu

Vista Prenta

Lauflétt sæt­kart­öflumús

  • 800 g af sætri kart­öflu
  • 90 – 100 g smjör
  • 2 – 3 dl rjómi
  • Salt­flög­ur eft­ir smekk
  • Nýmalaður svart­ur pip­ar eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Byrjið á að sjóða kart­öfl­urn­ar og flysja.
  2. Suðutím­inn get­ur verið mis­mun­andi eft­ir stærð og lög­un, en hann tek­ur yf­ir­leitt 20 – 40 mín­út­ur.
  3. Hægt er að stytta hann með því að skera kart­öfl­una í minni bita.
  4. Maukið síðan kart­öfl­urn­ar með töfra­sprota.
  5. Bræðið smjör í potti.
  6. Setjið maukuðu kart­öfl­urn­ar út í ásamt rjóma og blandið vel sam­an.
  7. Saltið og piprið eft­ir smekk.
  8. Berið fram með því sem hug­ur­inn girn­ist.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert