Fagurkerinn sem fer alla leið

Þórunn Högna elskar að skreyta og fer alla leið þegar …
Þórunn Högna elskar að skreyta og fer alla leið þegar kemur að því að skreyta fyrir páskana. mbl.is/Eyþór

Skreyt­ing­ar­drottn­ing­in með meiru, Þór­unn Högna, fer alla leið þegar kem­ur að því að skreyta fyr­ir pásk­ana. Hún skipt­ir ár­lega um litaþema og held­ur ekki fast í ákveðnar mat­ar­hefðir. Hún elsk­ar fátt meira en að breyta til og skapa nýj­ar hefðir

Þór­unn er list­rænn stjórn­andi hjá Icewe­ar og starfar líka sem stílisti. Hún er þekkt fyr­ir að vera með ákveðið þema eft­ir því hvert til­efnið er.

Hefðin sem Þór­unn held­ur í er fyrst og fremst að fjöl­skyld­an geri eitt­hvað sam­an.

„Við fjöl­skyld­an borðum ávallt sam­an um pásk­ana. Síðastliðin ár höf­um við alltaf farið upp í sum­ar­bú­stað og eldað góðan mat og verið að njóta sam­an. Ég elska þessi frí og þetta er í raun okk­ar hefð, að vera sam­an og borða góðan mat.“

Skreyt­ir með mint­ug­rænu, brúnu, hvítu og svörtu

Þór­unn hef­ur mikið dá­læti á því að skreyta og þegar kem­ur að því er hún ávallt með þema þegar kem­ur að lita­vali og jafn­vel efn­is­vali líka.

„Ég nota oft­ast það sem ég á bæði heima og uppi í sum­ar­bú­stað en ég kaupi nán­ast alltaf eitt­hvað nýtt fyr­ir pásk­ana. Í sum­ar­bú­staðnum í ár er ég með svört páska­kerti sem ég set borða á og einnig set ég páska­grein­ar í vasa, með ljós­um og kopareggj­um sem ég hengi skraut á. Heima er ég með blandaða liti, bæði hvít og græn páska­kerti og grein­ar með alls kon­ar jarðtóna­eggj­um sem ég hengi á grein­arn­ar. Mér finnst fal­legt að blanda sam­an mint­ug­rænu, brúnu, hvítu og svörtu eins og borðið er í ár. Ég geri síðan aðeins öðru­vísi uppi í sum­ar­bú­stað, þá er ég með meira svart, jarðlitað, kop­ar og brúna tóna,“ seg­ir hún.

Þórunn skreytti hátíðarborðið í fallegum litum þar sem mintugrænt, brúnt, …
Þór­unn skreytti hátíðar­borðið í fal­leg­um lit­um þar sem mint­ug­rænt, brúnt, svart og hvítt var í for­grunni. Síðan hengdi hún hænsna­net í ljós­in til þess að geta fram­kallað þessa „Avat­ar-æv­in­týra“-stemn­ingu og notaði til að hengja blóm, grein­ar, borða og egg í. mbl.is/​Eyþór

Þór­unni finnst alls ekki þurfa að skipta um þema á hverju ári þó að hún eigi það til að gera það.

„Mér finnst að hver og einn eigi að gera það sem viðkom­andi finnst fal­legt. Ég nota mitt páska­skraut ár eft­ir ár, blanda því sam­an við eitt­hvað nýtt og skipti um dúk á hátíðar­borði sem og kerta­stjaka og aðra fylgi­hluti. Ég skreyti kert­in gjarn­an með borða og blóm­um eða grein­um. Ef­laust á ég aðeins of mikið af páska­skrauti, en ég er dug­leg að nota það og gef það sem ég er hætt að nota,“ seg­ir Þór­unn með bros á vör.

Falleg kerti í jarðlitum prýða hátíðarborðið og Þórunn skreytir þau …
Fal­leg kerti í jarðlit­um prýða hátíðar­borðið og Þór­unn skreyt­ir þau gjarn­an með fal­leg­um borðum sem gera mikið fyr­ir út­litið. mbl.is/​Eyþór

Fá að velja eggið sjálf

Fjöl­skylda Þór­unn­ar ætl­ar ekki að fara út fyr­ir land­stein­ana um páska og stefn­ir beint í sveit­ina til að njóta. „Við ætl­um að vera í sveit­inni í kósí­heit­um, fara í pott­ana, borða góðan mat og njóta sam­ver­unn­ar.“

Þegar kem­ur að páska­eggja­áti seg­ir Þór­unn minna vera af því. „Ég hef aldrei verið mik­il áhuga­mann­eskja þegar kem­ur að páska­eggj­um, en finnst al­veg gott að fá einn til tvo bita hjá krökk­un­um. En mér finnst Nóakropp-eggið gott og svo kom Pretty­boitjok­ko-páska­eggið mér á óvart. Þessi yngsta er hrif­in af ljósu súkkulaði og hin eldri eru ekk­ert sér­lega hrif­in af páska­eggj­um en ömmu- og afa­börn­in fá sitt eigið egg sem þau velja sjálf.“

Þór­unn seg­ist ekki hafa haldið upp á máls­hætti úr páska­eggj­um, hvorki í æsku né á full­orðins­ár­um, enda eng­inn aðdá­andi páska­eggja. „Það er eng­inn sér­stak­ur máls­hátt­ur sem ég man eft­ir að hafa fengið, ég fékk ávallt að velja mér eitt­hvað annað en páska­egg á pásk­un­um sem krakki. Þá valdi ég frem­ur að fá nýja peysu, bux­ur eða aðra flík sem mig langaði í,“ seg­ir Þór­unn sposk á svip.

Kertastjakarnir eru í mörgum stærðum og gerðum þannig að kertin …
Kerta­stjak­arn­ir eru í mörg­um stærðum og gerðum þannig að kert­in eru í mis­mun­andi hæðum sem kem­ur skemmti­lega út. mbl.is/​Eyþór

Fengu ný nátt­föt á pásk­un­um

„Ég man eft­ir að við systkin­in feng­um ávallt ný nátt­föt og það var alltaf tek­in mynd af okk­ur með páska­egg­in okk­ar þegar við vor­um litl­ir krakk­ar með egg­in í nátt­föt­un­um. En ég hef aldrei verið sér­stök áhuga­mann­eskja þegar kem­ur að páska­eggj­um, ég fékk mér kannski einn til tvo bita en mér fannst nammið betra sem var inni í egg­inu held­ur en súkkulaðið sjálft. Ég hef reynd­ar aldrei verið nammig­rís og þess vegna vildi ég frek­ar flík­ur í páska­gjöf.“

Þó að Þór­unn sé ekki hrif­in af páska­eggj­um fá hinir að njóta þeirra og yngsta dótt­ir­in bíður ávallt spennt eft­ir því að sjá hvernig egg hún fær. Hún þarf þó að hafa fyr­ir því að sjá hvernig það lít­ur út.

„Við höf­um falið egg­in sem þessi yngsta fær, bæði hér heima og uppi í sum­ar­bú­stað. Það er sér­stak­lega gam­an að fela egg­in uppi í bú­stað þar sem við höf­um farið út og falið þau þar. Það er svo gam­an að fylgj­ast með leit­inni,“ seg­ir Þór­unn og bros­ir.

Hrá­skinku-carpaccio með geita­osti

Þegar að páska­máltíðinni kem­ur er Þór­unn iðin við að skipta um mat­seðil og hún er búin að setja sam­an seðil­inn fyr­ir næstu páska­hátíð.

„Ég ætla að bjóða upp á hrá­skinku-carpaccio með geita­osti, pek­an­hnet­um, tómöt­um og hun­angi í for­rétt. Síðan verður risotto með nauta­kjöti og gráðosti í aðal­rétt og einn minn allra­upp­á­halds í eft­ir­rétt en það er epla­desert. Síðan mun­um við líka grilla um pásk­ana og bjóða upp á sæl­kerakræs­ing­ar sem eng­inn stenst.“

Ég er mjög hrif­in af carpaccio en langaði að gera mína út­færslu af því. Ég er líka mjög hrif­in af geita­osti og elska pek­an­hnet­ur, þannig að í þess­um for­rétti er allt mitt upp­á­halds. Þessi for­rétt­ur er guðdóm­leg­ur, en auðvitað eru ekki all­ir sem fíla geita­ost, en þá er líka bara hægt að skipta hon­um út og hafa burrata- eða par­mesanost,“ seg­ir Þór­unn með bros á vör.

Hún gef­ur hér les­end­um Morg­un­blaðsins upp­skrift­ina að for­rétt­in­um og góðar hug­mynd­ir að því hvernig hægt er galdra fram dýrðlega páska­köku á skömm­um tíma.

Forrétturinn í boði Þórunnar er litríkur og girnilegur þar sem …
For­rétt­ur­inn í boði Þór­unn­ar er lit­rík­ur og girni­leg­ur þar sem hrá­skink­an er í aðal­hlut­verki ásamt geita­ost­in­um og pek­an­hnet­um. mbl.is/​Eyþór

Salt­kara­mellukaka í páska­bún­ingi

„Oft­ast baka ég mín­ar kök­ur sjálf en stund­um hef ég keypt til­bún­ar kök­ur án skreyt­inga og skreytt þær sjálf. Mér finnst svo gam­an að skreyta kök­ur. Mig langaði svo að hafa eina háa hvíta köku á borðinu og skreyta með fersk­um blóm­um, páska­grein­um til að hengja lít­il egg á.

Páskakakan er fagurlega skreytt, með páskagreinum, lifandi blómum og páskaeggjum. …
Páskakak­an er fag­ur­lega skreytt, með páska­grein­um, lif­andi blóm­um og páska­eggj­um. Litaþemað er alls­ráðandi í öll­um skreyt­ing­un­um. mbl.is/​Eyþór

Þessi tveggja hæða salt­kara­mellukaka sem ég er með hér er frá 17 sort­um. Það er frá­bært að geta stund­um fengið stíl­hreina köku og skreytt að eig­in vali. Svo fannst mér eitt­hvað skemmti­legt við það að setja kerti á hana líka, það þarf ekk­ert endi­lega að vera af­mæli,“ seg­ir Þór­unn um köku­gerðina.

Fagurkerinn sem fer alla leið

Vista Prenta

Hrá­skinku-carpaccio að hætti Þór­unn­ar

  • 2 pakk­ar hrá­skinka
  • 1 box kirsu­berjatóm­at­ar
  • 1 stk. kína­hvít­lauk­ur
  • 1 búnt fersk basilíka
  • salt og pip­ar eft­ir smekk
  • 2-3 msk. ólífu­olía
  • ½ pakki pek­an­hnet­ur
  • 1 stk. geita­ost­ur að eig­in vali
  • hun­ang eft­ir smekk
  • bri­oche-brauð frá Sand­holt

Aðferð:

  1. Raðið hrá­skinku á bakka eða disk sem þið viljið bera rétt­inn fram á.
  2. Skerið tóm­at­ana í tvennt og setjið í skál ásamt hvít­lauk, smá basilíku og ólífu­olíu og kryddið til með salti og pip­ar.
  3. Blandið síðan vel sam­an.
  4. Dreifið blönd­unni yfir hrá­skink­una, ásamt geita­osti og pek­an­hnet­um. Dreifið síðan smá hun­angi yfir í lok­in.
  5. Skerið brauðið í þykk­ar sneiðar og grillið þær á pönnu með smá ólífu­olíu á.
  6. Berið fram og njótið.
Skemmtileg að sjá hvernig Þórunn merkir glösin með kanínuklemmum.
Skemmti­leg að sjá hvernig Þór­unn merk­ir glös­in með kan­ínuklemm­um. mbl.is/​Eyþór
Páskakakan er dýrðleg og frumlegt að nýta páskagreinar til skreyta.
Páskakak­an er dýrðleg og frum­legt að nýta páska­grein­ar til skreyta. mbl.is/​Eyþór
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert