Átta verðlaun á þremur árum

Birgir Már Sigurðsson framkvæmdastjóri Þoran Distillery sem framleiðir Marberg-ginið sem …
Birgir Már Sigurðsson framkvæmdastjóri Þoran Distillery sem framleiðir Marberg-ginið sem er að fara sigurför um heiminn þessa dagana. Ljósmynd/Aðsend

Íslenska ginið Mar­berg hlaut á dög­un­um gull­verðlaun frá London Spi­rits Com­pe­titi­on, en sú keppni þykir afar ströng og er það vissu­lega saga til næsta bæj­ar þegar ís­lensk­ar vör­ur vinna þar verðlaun.

Þetta eru átt­undu verðlaun­in sem Mar­berg hlýt­ur frá því það kom út árið 2023, en í þetta skiptið var það Mar­berg Co­ast Guard-ginið sem hlaut gull­verðlaun­in.

„Co­ast Guard-ginið okk­ar er ákveðin skír­skot­un í stíl af gini sem kall­ast ‘navy strengt­h’, en gin í þeim flokki þurfa að vera með að minnsta kosti 57% vín­anda. Þannig að áskor­un­in er að reyna að hafa það eins mjúkt og hægt er en samt í þess­um háa styrk,” seg­ir Birg­ir Már Sig­urðsson, fram­kvæmda­stjóri Þoran Distillery sem fram­leiðir Mar­berg-gin.

Framreiðslan fer öll fram út á Granda við gömlu höfnina …
Fram­reiðslan fer öll fram út á Granda við gömlu höfn­ina í vest­ur­bæ Reykja­vík­ur. Ljós­mynd/​Aðsend

„Við höf­um alltaf reynt að tengja okk­ar vör­ur við sjó­inn, bæði vegna þess að við not­um m.a. ís­lenskt söl og belt­isþara í vör­un­um okk­ar, auk þess sem fram­leiðslan okk­ar er nú stödd á gamla hafn­ar­svæðinu við Granda,” bæt­ir Birg­ir við.

Birgir er einbeittur við vinnu sína.
Birg­ir er ein­beitt­ur við vinnu sína. Ljós­mynd/​Aðsend

Mar­berg hlaut einnig gull­verðlaun frá Global Gin Masters árið 2024, var valið besta þurra gin Íslands og hlaut að auki gull­verðlaun fyr­ir hönn­un frá World Gin Aw­ards árið 2023.

Birgir segist alltaf reyna að tengja vörur þeirra við sjóinn, …
Birg­ir seg­ist alltaf reyna að tengja vör­ur þeirra við sjó­inn, bæði vegna þess að í þær er m.a. notað ís­lenskt söl og belt­isþari auk þess sem fram­leiðslan þeirra er stödd á gamla hafn­ar­svæðinu við út við Granda í vest­ur­bæ Reykja­vík­ur. Ljós­mynd/​Aðsend
Íslenska ginið Marberg hlaut á dögunum gullverðlaun frá London Spirits …
Íslenska ginið Mar­berg hlaut á dög­un­um gull­verðlaun frá London Spi­rits Com­pe­titi­on. Ljós­mynd/​Aðsend
Birgir Már hefur fengið 8 verðlaun á síðustu 3 árum …
Birg­ir Már hef­ur fengið 8 verðlaun á síðustu 3 árum fyr­ir fram­reiðslu sína á Mar­berg-gin­inu. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert