31 ár af dönskum kræsingum og upplifunum

Danskir dagar standa nú yfir í verslunum Hagkaups þar sem …
Danskir dagar standa nú yfir í verslunum Hagkaups þar sem ekta danskar kræsingar og nýjungar verða í forgrunni. Sigurður Reyndaldsson og Eva Laufey Kjaran eru full tilhlökkunar fyrir dögunum. Samsett mynd

Dansk­ir dag­ar eru orðnir ómiss­andi hluti af vor­inu í versl­un­um Hag­kaups og hafa í rúma þrjá ára­tugi fært ís­lensk­um viðskipta­vin­um ekta dansk­ar kræs­ing­ar og nýj­ung­ar.

„Nú fögn­um við 31. skipti sem þessi vin­sæla mat­ar­hátíð er hald­in – og eins og ávallt er mik­ils að vænta. Dansk­ir dag­ar fara fram dag­ana 2.–11. maí næst­kom­andi og af því til­efni fyll­ast versl­an­ir Hag­kaups af völd­um dönsk­um mat­vör­um og sæt­um freist­ing­um sem alla jafna eru ekki fá­an­leg­ar hér­lend­is,“ seg­ir Sig­urður Reyn­alds­son fram­kvæmda­stjóri Hag­kaups.

„Á boðstól­um verður úr­val af ekta dönsku smør­rebrød, pyls­um, steik­um, salöt­um, ost­um, spægipyls­um og ljúf­fengu sæl­gæti. Meðal þess sem má ekki láta fram­hjá sér fara eru kol­dskål með kammerjun­ker, gróf­hökkuð lifr­arkæfa, súkkulaðiá­legg, marzip­an­brauð frá Ant­hon Berg – og auðvitað nýbakaðir kanil­snúðar, sjón­varp­s­kaka og fleiri dansk­ir hefðarrétt­ir,“ bæt­ir Sig­urður við.

Í rúm þrjátíu ár eru síðan Hagkaup byrjaði með Danska …
Í rúm þrjá­tíu ár eru síðan Hag­kaup byrjaði með Danska daga. Ljós­mynd/​Aðsend

Sér­stök áhersla á upp­lif­un

„Við leggj­um sér­staka áherslu á upp­lif­un í versl­un­um og ætl­um að gera Danska daga 2025 ein­stak­lega lif­andi og eft­ir­minni­lega. Í til­efni hátíðar­inn­ar verður boðið upp á skemmti­lega viðburði og smakk í völd­um versl­un­um, þar sem gest­ir geta kynnst dönsku vöru­úr­vali af eig­in raun og notið góðrar stemn­ing­ar í leiðinni,“ seg­ir Eva Lauf­ey Kjaran markaðs- og upp­lif­un­ar­stjóri Hag­kaups.

Þriðju­dag­inn 6. maí næst­kom­andi verður boðið upp á dansk­ar pyls­ur í há­deg­inu í Hag­kaup í Skeif­unni auk þess sem inni í versl­un­inni verður lukku­hjól og gleði í boði Toms. Seinni part­inn þann sama dag verður boðið upp á Danskt su­mar­kvöld með snyrti­vöru­fram­leiðand­an­um GOSH Copen­hagen í Hag­kaup í Smáralind. Þar fá gest­ir tæki­færi til þess að læra skemmti­leg förðun­ar­ráð fyr­ir sum­arið með þessu frá­bæra danska snyrti­vörumerki.

„Miðviku­dag­inn 7. maí næst­kom­andi verður svo mat­gæðing­ur­inn Helga Gabrí­ela í versl­un okk­ar í Kringl­unni með kynn­ingu og smakk á ljúf­fengu dönsku smør­rebrød sem sæl­ker­ar ættu alls ekki að láta fram hjá sér fara,“ seg­ir Eva Lauf­ey að lok­um og hlakk­ar til að taka á móti gest­um á Dönsk­um dög­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert