Eyþór Rúnarsson matreiðslumeistari og yfirkokkur hjá Múlakaffi kann listina að gleðja matargesti sína með dýrindissteikum sem munað er eftir. Hann mælir til að mynda með þessari dýrðlegu nautalund í pipar- og villisveppahjúp sem hann ber fram með fylltum kartöflum. Hreint sælgæti að njóta og nóg af próteini.
Eyþór heldur úti heimasíðunni sem ber einfaldlega heitið Eyþór kokkur og þar er ýmsa auðugan garð að gresja af girnilegum uppskriftum fyrir sumarið.
Dýrðleg nautalund í pipar- og villisveppahjúp borin fram með fylltum kartöflum.
Ljósmynd/Eyþór Rúnarsson
Eyþór mælir með heilsteiktri nautalund til að njóta um helgina
Heilsteikt nautalund í pipar- og villisveppahjúp með fylltum kartöflum
Fyrir 4
- 1 stk. nautalund (1000-1200 g)
- 1 msk. sinnepsfræ
- 1 msk. svört piparkorn
- 25 g. þurrkaðir villisveppir
- 1 msk. reykt paprikuduft
- ½ tsk. chiliflögur
- 1 msk. timian
- 1 msk. sjávarsalt
- olía til steikingar
- 100 g smjör
Aðferð:
- Setjið kryddin og villisveppina saman í mortel og brjótið niður.
- Veltið nautalundinni upp úr blöndunni, hitið pönnu með olíu og brúnið lundina allan hringinn, setjið smjörið í lokin á pönnuna og ausið því yfir lundina.
- Setjið lundina ásamt smjörinu í eldfast form og setjið inn í 200°C heitan ofn í 15 mínútur eða þar til lundin hefur náð 46°C kjarnhita.
- Takið lundina út úr ofninum og setjið álpappír yfir og látið hvíla í 15 mínútur áður en hún er borin fram.
Fylltar kartöflur með beikoni, rauðlauk og dijonsinnepi
- 4 stk. bökunarkartöflur
- ½ bréf beikonkurl
- 1 stk. rauðlaukur
- 1/3 poki steinselja
- 1 msk. dijon sinnep
- 250 ml rjómi
- sjávarsalt
- 150 g rifinn ostur
Aðferð:
- Bakið kartöflurnar við 200°C í 80 mínútur eða þar til þær eru fullbakaðar.
- Skafið innan úr kartöflunum og geymið innihaldið í skál, setjið kartöfluhýðið í eldfast mót.
- Hitið pönnu og steikið beikonkurlið þar til það er að verða stökkt og bætið því næst rauðlauknum út á pönnuna og steikið hann þar til hann er orðinn mjúkur.
- Bætið svo rjómanum út á pönnuna og látið hann sjóða í um það bil 2 mínútur. Endið á að setja sinnepið, kartöflurnar og steinseljuna út á pönnuna og blanda öllu saman.
- Smakkið til með salti.
- Fyllið kartöfluhýðið með kartöflublöndunni, dreifið ostinum jafnt yfir og setjið inn í 180°C heitan ofninn og bakið í um það bil 20 mínútur.