Berglind toppar sig og gerði Brownie-ísköku með hnetutoppís

Þessi á eftir að slá í gegn, ískaka með hnetutoppís …
Þessi á eftir að slá í gegn, ískaka með hnetutoppís og brownies er blanda sem getur ekki klikkað. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Berg­lind Hreiðars hjá Gotte­rí og ger­sem­ar er sniðugri en flest­ir að galdra fram ein­falda eft­ir­rétti og kök­ur sem auðvelt er að gera. Hér kem­ur hún með eina snilld­ina til viðbót­ar, ís­köku með hnetutopp og brownies.

Það er of­ur­ein­falt að út­búa þessa ís­köku og hrá­efn­in auðvelda all­an fer­il­inn. Það er allra besta er að hún er svaka­lega góð og deg­in­um ljós­ara að þeir sem elska hnetutopp og brownies eiga eft­ir að elska hana.

Þessi er líka svo falleg á borðið.
Þessi er líka svo fal­leg á borðið. Ljós­mynd/​Berg­lind Hreiðars

Berglind toppar sig og gerði Brownie-ísköku með hnetutoppís

Vista Prenta

Brownie-ískaka með hnetutopp­ís

  • 1 pk. Betty Crocker Chocola­te Fudge Brownie Mix
  • 1 egg
  • 50 ml matarol­ía
  • 80 ml vatn
  • 1 msk. bök­un­ar­kakó
  • 1 box Rjómaís með hnet­um, súkkulaðihjúp og vöfflu­bit­um frá Em­mess­ís
  • 3 x Hnetutopp­ur frá Em­mess­ís
  • Heit kara­mellusósa
  • Heit súkkulaðisósa
  • Hnetukurl frá Em­mess­ís

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 160°C, setjið bök­un­ar­papp­ír í botn­inn á 2 x 20 cm smellu­form­um og spreyið vel að inn­an með matarol­íu­spreyi.
  2. Hrærið sam­an egg, matarol­íu, vatn og bök­un­ar­kakó, bætið Betty köku­dufti sam­an við, skiptið síðan niður í formin tvö.
  3. Bakið í 18-20 mín­út­ur, takið út og leyfið al­veg að kólna áður en þið setjið sam­an.
  4. Setjið ½ ís­dós ofan á neðri botn­inn og sléttið vel úr.
  5. Leggið seinni botn­inn ofan á ís­inn og end­ur­takið.
  6. Stingið 3 x topp­ís ofan í efra lagið á ísn­um og frystið í um eina klukku­stund aft­ur.
  7. Rennið beitt­um hníf meðfram form­inu til að losa ís­inn og færið ís­kök­una yfir á disk.
  8. Hellið kara­mellu- og súkkulaðisósu yfir allt og stráið vel af hnetukurli yfir.
  9. Geymið í frysti fram að notk­un.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert