Brynja Dan kann að skipuleggja veislu

Brynja Dan er þekkt fyrir að halda glæsilegar veislur og …
Brynja Dan er þekkt fyrir að halda glæsilegar veislur og er rómaður fagurkeri. Það verður mikið um veisluhöld þetta árið hjá Brynju. Ljósmynd/Eygló Gísla

Flest höf­um við heyrt um fyr­ir­bærið „rehear­sal dinner“ í tengsl­um við glæsi­leg brúðkaup er­lend­is en sjald­gæfara er að slíkt tíðkist hér­lend­is. En það var ein­mitt raun­in í Sjálandi á dög­un­um.

Brynja Dan, lífs­k­únstner, bæj­ar­full­trúi og eig­andi Extral­opp­unn­ar, er þekkt fyr­ir að halda glæsi­leg­ar veisl­ur og er rómaður fag­ur­keri. Það verður mikið um veislu­höld þetta árið hjá Brynju. Stjúp­son­ur henn­ar út­skrif­ast úr Fjöl­braut­ar­skól­an­um í Garðabæ í vor og Brynja sjálf verður fer­tug í lok sum­ars. Brynja leitaði því til Múlakaff­is með það fyr­ir aug­um að full­komna veislu­höld­in.

Slógu tvær flug­ur í einu höggi

Um þess­ar mund­ir er veisluþjón­ustu­teymi Múlakaff­is, með þá Ísak Aron Jó­hanns­son og Eyþór Rún­ars­son í broddi fylk­ing­ar, að frum­sýna nýja og spenn­andi rétti fyr­ir veisl­ur sum­ars­ins, og þannig kviknaði sú hug­mynd að slá tvær flug­ur í einu höggi og setja upp „rehear­sal-veislu“ í Sjálandi, en veisl­an í til­efni út­skrift­ar­inn­ar fer ein­mitt fram þar.

„Það að halda veisl­ur er eitt það skemmti­leg­asta sem ég geri og það er nátt­úru­lega al­gjör lúx­us að fá að prufu­keyra veisl­una fyr­ir­fram og sjá hvernig þetta kem­ur til með að líta út á stóra dag­inn. Ég er svo­lítið týp­an sem fer alla leið þegar kem­ur að veisl­um, vil eng­ar óvænt­ar uppá­kom­ur og trúi á s-in þrjú: skipu­lag, skipu­lag og skipu­lag”, seg­ir Brynja og bros­ir.

Brynja segir að gott skipulag sé grundvallaratriðið þegar veislu skal …
Brynja seg­ir að gott skipu­lag sé grund­vall­ar­atriðið þegar veislu skal halda. Ljós­mynd/​Eygló Gísla

„Rehear­sal-veisl­an“ tókst frá­bær­lega eins og mynd­irn­ar sem fylgja sýna vel og má segja að allt sé því orðið klappað og klárt.

Þetta var virki­lega skemmti­legt og gagn­legt enda er ég með teymi af dá­sam­leg­um of­ur­kon­um í kring­um mig sem ég vinn með aft­ur og aft­ur. Eygló Gísla ljós­mynd­ari fang­ar alltaf ótrú­lega eðli­leg­ar og skemmti­leg­ar mynd­ir, Guðríður í Múlakaffi er „geit­in“ í veit­ing­um. Og þegar kem­ur að skreyt­ing­um þá finnst mér geggjað að vinna með Svönu Lovísu sem á Studio Flam­ingo. Hún not­ast mikið við blóm sem eru ekki lif­andi en henta frá­bær­lega til skreyt­inga, þau eru svo raun­veru­leg,“ seg­ir Brynja.

Brynju finnst skipta máli að vera með fjölbreytt úrval af …
Brynju finnst skipta máli að vera með fjöl­breytt úr­val af smá­rétt­um svo all­ir geti fundi eitt­hvað við sitt hæfi. Takið líka eft­ir blóma­skreyt­ing­un­um og hvað þær gera mikið fyr­ir rýmið. Ljós­mynd/​Eygló Gísla

Góð veisluráð Brynju Dan

  • S-in þrjú: Skipu­lag, skipu­lag, skipu­lag.
  • Sal­ur­inn: Fal­leg­ur staður sem tek­ur vel utan um gesti og er hlý­leg­ur.
  • Góður og fal­lega fram­bor­inn mat­ur sem hent­ar öll­um og er þægi­legt að grípa.
  • Vel yf­ir­les­inn gestalisti, má ekki gleyma nein­um.
  • Fal­leg­ar skreyt­ing­ar, ekki of mikið, en sum­ar­legt og ferskt eins og árstíðin.
  • Hljóðkerfi frá Rent a Party og mynda­kassi skemm­ir aldrei.
  • Þægi­leg­ur playlisti, ekki of hátt stillt­ur.
  • Ljós­mynd­ari sem sér um að fanga minn­ing­arn­ar.
  • Gesta­bók.
  • Boðskort á Face­book.

Skarta óviðjafn­an­legu sjáv­ar­út­sýni

Veislu­sal­irn­ir í Sjálandi skarta óviðjafn­an­legu sjáv­ar­út­sýni og því er töfr­um lík­ast þegar veðurguðirn­ir ákveða að draga ský­in frá á veislu­dög­um. „Auðvitað kross­ar maður alla 10 fing­ur með að veðrið verði fal­legt, þá verða all­ar mynd­ir svo fal­leg­ar og minn­ing­arn­ar bjart­ar og sól­rík­ar. Sjá­land í góðu veðri er að mínu mati fal­leg­asti veislu­sal­ur lands­ins,“ seg­ir Brynja dreym­in á svip.

Sjá­land í Garðabæ inni­held­ur tvo sali og get­ur því hýst veisl­ur af öll­um stærðum og gerðum. „Mér fannst minni sal­ur­inn passa best, hann tek­ur vel utan um þessa fjöld­ann sem kem­ur í veisl­una, hann er fal­leg­ur og alls ekki of kald­ur. Mér finnst mik­il­vægt að veisl­an sé hlý­leg og svo eru veit­ing­arn­ar nátt­úru­lega aðal­stjarn­an í veisl­unni. Þess­ar veit­ing­ar frá Múlakaffi eru nátt­úru­lega him­nesk­ar og eiga al­veg jafn­vel vel við í öll­um veisl­um, brúðkaup­um, ferm­ing­um, stóraf­mæl­um og út­skrift­um,“ bæt­ir Brynja við.

Skemmtilegt er að bera fram sælkeraspjót eins og þessi sem …
Skemmti­legt er að bera fram sæl­kera­spjót eins og þessi sem fanga bæði augu og munn. Ljós­mynd/​Eygló Gísla

Hvaða nýju og spenn­andi rétti er veisluþjón­ust­an að frum­sýna?

Ísak Aron, lyk­ilmaður í veisluþjón­ustu­teymi Múlakaffi og landsliðsfyr­irliði kokka­landsliðsins, var fljót­ur að svara því. „Við erum bún­ir að vera í til­rauna­eld­húsi und­an­far­in miss­eri og erum að springa úr spenn­ingi að frum­sýna nýju rétt­ina. Til að nefna ein­hverja þá erum við með pönnu­steikta, arg­entíska ris­arækju í hvít­lauks- og chili-olíu með fersk­um basil,nauta- og ostakrókettu með par­mes­an-maj­ónesi, Brie-osta­sal­at í tartalettu með stökku salami og Yuzu og sítr­ónumús í súkkulaðisk­el með stökk­um hind­berj­um.“

Ísak Aron Jóhannsson og kokkateymið hugsa fyrir hverju smáatriði þegar …
Ísak Aron Jó­hanns­son og kokkat­eymið hugsa fyr­ir hverju smá­atriði þegar veisl­urkræs­ing­arn­ar eru ann­ars veg­ar. Ljós­mynd/​Eygló Gísla

„Það eru því spenn­andi og bragðgóðir tím­ar framund­an í veislu­höld­um sum­ars­ins,“ seg­ir Brynja að lok­um sem er orðin spennt að bjóða til veislu.

Fyr­ir áhuga­sama má skoða alla þessa smá­rétti og meira til er hægt að skoða og panta á vefsíðu Múlakaffi.

Sumarlegir réttir eru í forgrunni.
Sum­ar­leg­ir rétt­ir eru í for­grunni. Ljós­mynd/​Eygló Gísla

 

Sætu bitarnir fá líka sitt pláss til gleðja bragðlaukana.
Sætu bitarn­ir fá líka sitt pláss til gleðja bragðlauk­ana. Ljós­mynd/​Eygló Gísla
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert