Svavar afhjúpar leyndardómsfullu uppskriftina að drykk ársins

Svavar Helgi Ernuson sigraði keppnina um RWC drykk ársins í …
Svavar Helgi Ernuson sigraði keppnina um RWC drykk ársins í ár. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svavar Helgi Ernu­son veit­inga­stjóri og barþjónn á Tip­sý bar við Hafn­ar­stræti vann keppn­ina um drykk árs­ins á kokteila­hátíðinni Reykja­vík Cocktail Week í ár. Vinn­ings­drykk­ur­inn eða RCW drykk­ur­inn ber enska heitið Fantaisie Francaise og vakti mikla at­hygli dóm­nefnd­ar fyr­ir bragð, áferð og út­lit.

Svavar, sem er einnig eig­andi að Tip­sý bar, er afar ánægður með þenn­an titil og seg­ir það vera virki­lega góða til­finn­ingu að hafa unnið þenn­an titil. „Það var virki­lega gleðilegt að taka þenn­an titil með sér heim,“ seg­ir Svavar og bros­ir hring­inn.

Aðspurður seg­ist hann alls ekki hafa farið í keppn­ina með mikl­ar vænt­ing­ar um sig­ur. „Ég var ekki bú­inn að taka þátt í neinni kokteila­keppni í frek­ar lang­an tíma og langaði til að henda mér aft­ur út í djúpu laug­ina og skráði mig til leiks og þetta var út­kom­an,“ seg­ir Svavar og glott­ir.

Svavar Helgi kann að blanda góða kokteila.
Svavar Helgi kann að blanda góða kokteila. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Ætlaði alltaf að verða lög­reglumaður

„Ég ætlaði mér ekki að verða barþjónn í fyrstu, al­veg frá því að ég var lít­ill polli langaði mig alltaf verða lög­reglumaður. Ástríðan fyr­ir þessu starfi kom ekki fyr­ir fyrr en á unglings­ár­un­um, þegar ég var um 16, 17 ára gam­all. En ég byrjaði í brans­an­um árið 2010 sem barþjónn á Sus­hi Sam­ba, sem er Sus­hi Social í dag, og vann mig svo upp sem veit­ing­ar­stjóra og síðan sem meðeig­andi.

Það sem heill­ar mig við kokteil­agerð er list­in við að setja sam­an skemmti­leg og flók­in hrá­efni til þess að búa til ferska og ljúf­fenga drykki. Það er eitt­hvað við það sem hríf­ur mig.“

Það er list að kunna að blanda góða drykki.
Það er list að kunna að blanda góða drykki. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Þegar Svavar er beðinn um að lýsa sín­um barþjóna­stíl seg­ir hann stíl­inn sinn vera frek­ar „el­eg­ant“ og „old school“ með mód­ern­ísku tvisti.

„Góður barþjónn þarf fyrst og fremst að vera op­inn fyr­ir öll­um bragðflokk­um og vita hvernig á að vinna með þá. Fljót­færni er einnig mik­il­vægt lyk­il­atriði. En þetta eru líka hlut­ir sem maður lær­ir með tím­an­um og hver sem er get­ur orðið góður barþjónn ef vilj­inn er fyr­ir hendi.“

Sviðshæfi­leik­ar og fag­leg vinnu­brögð

Svavar hef­ur tekið þátt í fjölda kokteila­keppna og seg­ist ekki hafa töl­una yfir hve marg­ar þær eru orðnar en hann á fjóra titla að baki. Hann er líka meðvitaður um hvaða hæfi­leik­um góður barþjónn þarf að búa yfir til að heilla dóm­nefnd­irn­ar í þess­um keppn­um upp úr skón­um.

Svavar Helgi hellir blöndunni gegnum sigti í lokin.
Svavar Helgi hell­ir blönd­unni gegn­um sigti í lok­in. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

„Sviðshæfi­leik­ar, fag­leg vinnu­brögð og að kunna að gera ljúf­fenga drykki sem ilma og lykta vel er leiðin til sig­urs,“ seg­ir Svavar með bros á vör. Sjálf­ur á hann sín upp­á­haldsvín þegar hann ætl­ar að gera góða kokteila en það bour­bon, vi­ský, koní­ak og gæða tequila.

„Það skipt­ir máli að vera með góð og fersk hrá­efni, einnig skipt­ir líka sköp­un að nota réttu hrá­efn­in. Finna hvað pass­ar vel sam­an og ekki að vera hrædd við að prófa eitt­hvað öðru­vísi,“ seg­ir Svavar.

Svavar af­hjúp­ar hér upp­skrift­ina að vinn­ings­drykkn­um sín­um sem náði að hrífa alla dóm­nefnd­ina með sér og kall­ast eft­ir sig­ur­inn RWC drykk­ur árs­ins 2025. En drykk­ur árs­ins er vænt­an­leg­ur á næst­unni á bar­seðil­inn á Tip­sý bar svo þeir sem ekki treysta sér til að blanda þenn­an geta skroppið á Tip­sý að smakka. Vert er að fylgj­ast með sam­fé­lags­miðlun­um hjá Tip­sý til að sjá hvenær drykk­ur­inn frægi verður kom­inn á seðil.

Gullfallegur drykkur, Fantaisie Francaise – RWC drykkur ársins 2025.
Gull­fal­leg­ur drykk­ur, Fantaisie Francaise – RWC drykk­ur árs­ins 2025. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Svavar afhjúpar leyndardómsfullu uppskriftina að drykk ársins

Vista Prenta

Fantaisie Francaise – RWC drykk­ur árs­ins 2025

  • 45 cl Noi­sette-smjör, prima donna cheese fat washed Cam­us cognag
  • 45 cl heima­til­búið mar­melaði cordial
  • 20 cl Montenegro amaro

Aðferð:

  1. Setjið hrá­efn­in í kokteil­hrist­ara og hristið vel.
  2. Hellið blönd­unni í gegn­um sigti í fal­legt, lítið glas á fæti og skreytið að vild.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert