Lemon Drop er ferskur, sumarlegur og hvítur drykkur fyrir vandláta

Lemon Drop er sumarlegur og ferskur kokteill fyrir þá vandlátu.
Lemon Drop er sumarlegur og ferskur kokteill fyrir þá vandlátu. Ljósmynd/Kristinn Magnússon

Lemon Drop er fersk­ur, fal­leg­ur, hvít­ur drykk­ur með vod­ka, sítr­ónu og Triple Sec-app­el­sínu­lí­kjör. Vel er hægt að mæla með ís­lenska vod­k­an­um Kötlu í þenn­an drykk, sem gef­ur mjúka und­ir­stöðu á móti sítr­ónu­bragðinu. Eða þið veljið ykk­ar upp­á­halds vod­ka í drykk­inn. Syk­ur­inn á kant­in­um gef­ur skemmti­lega áferð og ilm­ur­inn af sítr­ónu­berk­in­um gef­ur drykkn­um fersk­an blæ.

Lemon Drop á ætt­ir sín­ar að rekja til San Francisco á vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna og var fund­inn upp af bar­eig­and­an­um Norm­an Jay Hobday í kring­um 1970. Síðar átti Lemon Drop eft­ir að rata á drykkj­ar­seðla á bör­um úti um all­an heim.

Upp­skrift­in kem­ur úr kokteila­bók­inni Heima­bar­inn eft­ir þá Andra Davíð Pét­urs­son og Ivan Svan Corwasce barþjóna en í bók­inni er að finna fjöl­marga girni­lega kokteila og drykki sem eiga sér sögu.

Lemon Drop er ferskur, sumarlegur og hvítur drykkur fyrir vandláta

Vista Prenta

Lemon Drop

  • 50 ml vod­ki
  • 15 ml Triple Sec
  • 25 ml sítr­ónusafi
  • 15 ml syk­urs­íróp
  • Sítr­ónu­börk­ur fyr­ir auka sítr­ónu­lykt

Skraut:

  • Syk­ur á rönd­inni á glas­inu

Aðferð:

  1. Byrjið á að setja syk­ur á lít­inn disk, bleytið svo kant­inn á glas­inu með sítr­ónu­báti og dýfið því var­lega ofan í syk­ur­inn.
  2. Þá er glasið klárt.
  3. Næst setjið þið öll hrá­efn­in í hrist­ara, fyllið hann al­veg upp í topp með klaka og hristið hressi­lega í 10–15 sek­únd­ur þar til hrist­ar­inn er orðinn vel kald­ur.
  4. Streinið þá drykkn­um í gegn­um sigti í kælt coupe-glasið.
  5. Til að drykk­ur­inn fái ein­stak­an sítr­ónuilm takið þið ykk­ur sítr­ónu­börk í hönd og kreistið ol­í­una úr berk­in­um með því að snúa gula enda bark­ar­ins yfir glas­inu og pressa létt með fingr­un­um.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert