Heit spínatídýfa sem steinliggur með snakkinu í kvöld

Þessi er dýrðleg, heit ídýfa með spínati og góðri ostablöndu …
Þessi er dýrðleg, heit ídýfa með spínati og góðri ostablöndu sem passar fullkomnlega vel saman. Ljósmynd/Aðsend

Ef ykk­ur vant­ar góða upp­skrift að ídýfu fyr­ir Eurovisi­on-par­tíið í kvöld, þriðju­dag­inn 13. maí þegar VÆB-bræðurn­ir, Matth­ías Davíð og Hálf­dán, stíga á svið í Basel í Sviss þá er vel hægt að mæla með þess­ari dýrð. Þetta er heit og bragðgóð spína­tí­dýfa sem pass­ar ein­stak­lega vel með snakki.

Fyrri undan­keppni Eurovisi­on fer fram í kvöld og verður sýnt beint frá keppn­inni á RÚV og hefst út­send­ing­in klukk­an 19:00. VÆB-bræðurn­ir verða með upp­hafslag keppn­inn­ar svo það er eins gott að vera með veit­ing­arn­ar til­bún­ar fyr­ir út­send­ing­una.

Heit spínatídýfa sem steinliggur með snakkinu í kvöld

Vista Prenta

Heit spína­tí­dýfa

  • 2 stk. skalott­lauk­ur, saxaður
  • 25 g smjör
  • 450 g frosið spínat
  • 1-2 tsk. hvít­lauks­duft
  • 1 krukka þistil­hjörtu, sigtuð frá olíu
  • 400 g rjóma­ost­ur
  • 180 g sýrður rjómi
  • 2 tsk. pip­ar
  • Salt eft­ir smekk
  • 50 g par­mes­an ost­ur, rif­inn
  • 50 g chedd­ar, rif­inn
  • 50 g gouda, rif­inn
  • Fersk stein­selja til að toppa ídýf­una ef vill

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ofn­inn í 180°C hita
  2. Saxið skalott­lauk.
  3. Opnið krukku af þistil­hjört­um, sigtið ol­í­una af þeim og saxið fínt.
  4. Rífið par­mes­an ost, chedd­ar ost og gouda ost.
  5. Steikið skalott­lauk­inn á væg­um hita upp úr smjöri á stórri pönnu.
  6. Bætið frosnu spínati út í pönn­una.
  7. Steikið þar til það hef­ur þiðnað og allt vatn hef­ur gufað upp.
  8. Bætið þistil­hjört­um út í pönn­una og blandið.
  9. Bætið út í rjóma­ost­inn og blandið vel.
  10. Bætið næst rifn­um par­mes­an osti og pip­ar.
  11. Bætið síðan hvít­lauks­dufti við.
  12. Að lok­um bætið út í sýrðum rjóma og svo salti eft­ir smekk.
  13. Blandið vel og færið í eld­fast mót.
  14. Stráið yfir gouda og chedd­ar osti.
  15. Bakið þar til ost­ur­inn er bráðnaður og brúnaður.
  16. Toppið með saxaðri ferskri stein­selju og berið fram með snakki eða því sem ykk­ur lang­ar í.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert