„Stelst í súkkulaðið í vinnunni“

Snorri Björn Sturluson deilir með lesendum nokkrum skemmtilegum staðreyndum um …
Snorri Björn Sturluson deilir með lesendum nokkrum skemmtilegum staðreyndum um matarvenjur sínar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Snorri Björn Sturlu­son, sæl­keri með meiru, deil­ir með les­end­um mat­ar­vefs mbl.is nokkr­um staðreynd­um um mat­ar­venj­ur sín­ar að þessu sinni.

Snorri er Kópa­vogs­búi og býr í Sala­hverf­inu í Kópa­vogi og veit fátt skemmti­legra en að njóta góðs mat­ar. Hann er fast­eigna­sali og lög­fræðing­ur og rek­ur Val­höll fast­eigna­sölu ásamt Óskari H. Bjarna­sen meðeig­anda sín­um.

„Það eru ansi mörg verk­efni á mínu borði þessa dag­ana. Ásamt því að vera á fullu að selja fast­eign­ir þá er ég í óðaönn að skipu­leggja 30 ára af­mæli Val­hall­ar sem við ætl­um að halda upp á með pompi og prakt þann 23. maí næst­kom­andi. Þá erum við að fara kynna til leiks nýtt lógó Val­hall­ar ásamt því að setja í loftið nýja heimasíðu. Svo er sum­arið hand­an við hornið með öllu því sem það hef­ur upp á að bjóða og er ég að reyna skipu­leggja ein­hverj­ar spenn­andi ferðir og viðburði. Þetta eru því krefj­andi en jafn­framt mjög skemmti­leg­ir tím­ar,“ seg­ir Snorri.

Elsk­ar að borða mat, stund­um aðeins of mikið

Í öllu því sem Snorri tek­ur sér fyr­ir hend­ur er yf­ir­leitt mat­ur­inn skammt und­an. „Ég er mik­ill sæl­keri og elska að borða mat, stund­um aðeins of mikið. Ég nýt þess í raun að borða all­an mat, hvort sem það er heima­lagaður mat­ur, ein­fald­ur götumat­ur eða mat­ur á fín­um veit­ingastað. Þá læt ég sjald­an góðan eft­ir­rétt fram hjá mér fara,“ bæt­ir Snorri við. 

Þegar kem­ur að mat­ar­venj­um í tengsl­um við árstíðir seg­ist Snorri ekki breyta miklu. „Mat­ar­venj­ur mín­ar breyt­ast ekki mikið á sumr­in nema þá helst að ég dusta rykið af grill­inu og prófa mig áfram með hinum ýmsu hrá­efn­um og rétt­um á grill­inu. Það jafn­ast fátt á við góðan grill­mat úti á palli á fal­legu su­mar­kvöldi með góðum vin­um.“

Dug­leg­ur að henda í góðan dög­urð

Snorri svar­ar hér nokkr­um praktísk­um spurn­ing­um um mat­ar­venj­ur sín­ar og hefðir sem gefa ágæt­is inn­sýn í hvað heill­ar hann helst.

Hvað færðu þér í morg­un­mat?

„Ég borða sjaldn­ast morg­un­mat en þegar ég geri það þá verður grísk jóg­úrt með mús­lí eða hleðsla fyr­ir val­inu. Yf­ir­leitt fæ ég mér bara þeyt­ing í rækt­inni eft­ir morgu­næf­ingu. Um helg­ar er ég hins veg­ar dug­leg­ur að henda í góðan dög­urð.“

Borðar þú oft á milli mála og hvað þá helst?

„Ég borða sjaldn­ast milli mála nema þá þegar ég stelst í súkkulaðið í vinn­unni sem ger­ist reynd­ar furðu oft. Á kvöld­in á ég svo til að kíkja í nammis­kúff­una heima.“

Finnst þér ómiss­andi að borða há­deg­is­verð?

„Já, mér finnst það ómiss­andi og sér­stak­lega þar sem ég borða yf­ir­leitt ekki morg­un­mat. Há­deg­is­verður gef­ur manni bens­ín á tank­inn til að ljúka anna­söm­um degi. Vegna mik­illa anna þá á ég hins veg­ar til að borða há­deg­is­verðinn á hlaup­um og jafn­vel í bíln­um milli sýn­inga á hús­um og funda.“

Hvað áttu alltaf til í ís­skápn­um?

„Egg, Coke Zero og Eg­ils Lite.“

Þegar þú ætl­ar að gera vel við þig í mat og drykk og vel­ur veit­ingastað til að fara á, hvert ferðu?

„Ef það er í há­deg­inu þá verður Bombay Baz­ar ansi oft fyr­ir val­inu en þar fær maður æðis­leg­an ind­versk­an mat. Ef það er að kvöldi til þá á ég til að fara á Sus­hi Social. Þar er frá­bær mat­ur, góðir drykk­ir og skemmti­legt and­rúms­loft.“

Pepp­eróní, lauk­ur og chili-flög­ur

Hvað vilt þú á pítsuna þína?

„Í 93% til­vika fæ ég mér pepp­eróní, lauk og chili-flög­ur. Í 7% til­vika fæ ég mér pepp­eróní og pip­arost. Ég vil ekki hafa of mörg álegg á pítsuna mína. „Less is more.“

Hvað færð þú þér á pyls­una þína?

„Allt og mikið remúlaði.“

Hver er upp­á­halds­grill­rétt­ur­inn þinn?

„Kjúk­linga­bring­ur með bbq-marín­er­ingu, hassel­back-kart­öfl­um, heitri pip­arostasósu og fersku sal­ati.“

Gasgrillið fljót­ara að hitna

Áttu grill? Hvort heill­ar þig meira gas- eða kola­grill?

„Já, að sjálf­sögðu á ég grill. Ég á gasgrill og tek það fram yfir kola­grillið en ein­göngu vegna þess að það er minna vesen í kring­um það og það er fljót­legra að hitna.“

Hvort vel­ur þú kart­öfl­ur eða sal­at á disk­inn þinn?

„Helst bæði en ef annað hvort er ein­ung­is í boði þá verða kart­öfl­urn­ar fyr­ir val­inu.“

Hver er upp­á­halds­drykk­ur­inn þinn?

„Coke Zero verður oft­ast fyr­ir val­inu. En ef ég er að gera vel við mig þá segi ég ekki nei við ís­köld­um bjór eða góðu rauðvíns­glasi.“

Ertu með æði fyr­ir ein­hverju þessa dag­ana?

„Kjúllaka­dó Poké-skál­un­um á Tokyo Sus­hi, til­valið til að njóta í há­deg­inu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert