Hvaða sælkera og aðdáanda franskra osta langar ekki að sjá kvikmynd þar sem ostur er í forgrunni? Bæði í mynd og munni.
Næstkomandi fimmtudagskvöld, á morgun 15. maí, verður hugljúf kvikmynd og frægi osturinn, Comté, í sviðsljósinu í Bíó Paradís. Þá verður frumsýning á franskri kvikmynd sem enginn unnandi kvikmynda og góðra osta ætti að láta fram hjá sér fara. Undirrituð hefur fengið smjörþefinn af þessari dýrð, bæði kvikmyndinni sem og ostinum. Ég get vel staðfest að þessi ostur er hreinn unaður að njóta.
Kvikmyndin Holy Cow hefur hlotið lofsamlega dóma og fjallar um 18 ára gamlan pilt í frönsku sveitaþorpi sem neyðist til að sjá fyrir sjö ára gamalli systur sinni. Í örvæntingarfullri tilraun til að skapa þeim framtíð einbeitir hann sér að því að framleiða hágæða Comté-ost með það að markmiði að vinna til verðlauna í ostasamkeppni.
„Við vildum sýna þessa hugljúfu og áhrifamiklu mynd til að varpa ljósi á viðfangsefni sem sjaldan fá athygli. Þá er um að ræða ungt fólk á landsbyggðinni, franska sveitamenningu og fegurðina sem býr í hversdagslífinu,“ segir Alexandre LaBruffe, framkvæmdastjóri Alliance Française í Reykjavík.
Holy Cow var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes, þar sem hún hlaut Ungmennaverðlaunin (Youth Award) árið 2024, auk þess sem hún vann hin virtu César-verðlaun fyrir bestu fyrstu kvikmynd í fullri lengd. Hún hefur einnig hlotið mikið lof gagnrýnenda víða um heim. Kvikmyndin, sem sýnd er í Bíó Paradís í samstarfi við franska sendiráðið á Íslandi og Alliance Française, er eftir unga og efnilega kvikmyndagerðarkonu og hefur slegið í gegn.
„Hún snertir við manni, er fyndin og full vonar, mynd sem lætur manni líða vel,“ segir Alexandre og bætir við:„Ekkert opnar augu fólks fyrir umheiminum líkt og kvikmyndir og matargerð.“
Að lokinni sýningu verður boðið upp á léttvín og ostasmakk, auk þess sem farið verður í happdrætti þar sem hægt er að vinna ekta Comté-ostog fleiri osta. Það eina sem gestir þurfa að gera er að vera í sætinu sínu.
Comté, sem er fáanlegur í ýmsum verslunum hér á landi, er harður hrámjólkurostur frá Jura-héraðinu í austurhluta Frakklands, við landamæri Sviss. Hann hefur verið framleiddur með hefðbundnum aðferðum í yfir þúsund ár og er einn elsti og virtasti ostur Frakklands.
Hvert ostahjól vegur 30–40 kg og þroskast í að lágmarki 4 mánuði, en sum hjól eru látin eldast í allt að 36 mánuði. Því eldri sem osturinn er, þeim mun flóknara og dýpra verður bragðið, með tónum af hnetum, smjöri, karamellu og kryddi. Comté nýtur mikilla vinsælda í Frakklandi, bæði sem borðostur og í matargerð, t.d. í fondue, gratínum eða rifinn yfir kartöflur.
Osturinn er AOP-vottaður (Appellation d'Origine Protégée), sem þýðir að hann má aðeins framleiða á afmörkuðu svæði samkvæmt ströngum reglum. Aðeins má nota mjólk frá Montbéliarde- eða French Simmental-kúm sem ganga á fjöllum og fá eingöngu gras og hey – engin tilbúin fóðurefni koma þar að sögu.
Miða á frumsýninguna – þar sem bíður bíógesta gómsætur ostur, léttvín og happdrætti – má nálgast á vef Bíó Paradísar.