Leó sigraði World Class-barþjónakeppnina með glæsibrag

Leó Snæfeld barþjónn hjá Jungle sigraði World Class barþjónakeppnina hérlendis …
Leó Snæfeld barþjónn hjá Jungle sigraði World Class barþjónakeppnina hérlendis í ár og mun keppa í alþjóðlegu keppninni fyrir Íslands hönd sem mun fara fram í Toronto í Kanada í haust. Samsett mynd

Úrslit eru kunn í barþjóna­keppni World Class þar sem Leó Snæ­feld barþjónn tók bik­ar­inn heim en mikið var um að vera í Iðnó síðastliðinn mánu­dag og þriðju­dag þar sem fram fóru þrjár áskor­an­ir í World Class þar sem barþjón­ar söfnuðu stig­um.

Leó fagnaði ákaft þegar úrslitin voru kunngjörð.
Leó fagnaði ákaft þegar úr­slit­in voru kunn­gjörð. Ljós­mynd/ Kuba Skw­ara

Eins og áður sagði sigraði Leó World Class-barþjóna­keppn­ina með glæsi­brag. Hann mun því keppa fyr­ir Ísland í alþjóðlegu World Class-barþjóna­keppn­inni í haust í Toronto í Kan­ada þar sem keppn­in fer fram í ár.

Leó í sigurvímu eftir að úrslitin voru kunngjörð.
Leó í sig­ur­vímu eft­ir að úr­slit­in voru kunn­gjörð. Ljós­mynd/ Kuba Skw­ara

Gef­in voru verðlaun fyr­ir barþjóna sem voru efst­ir í áskor­un­um og sigraði Mart­in Ca­bej­sek Don Ju­lio nánd­ar­áskor­un, Dag­ur Jak­obs frá Apó­tek­inu var stiga­hæst­ur með Johnnie Wal­ker Pop-up bar­inn og Leó vann óvissu­boxið og hraðakeppn­ina. 

Dómarateymi keppninnar, Jakob Eggerts, Hrefna Sætran og Tim Philips-Johanson.
Dóm­arat­eymi keppn­inn­ar, Jakob Eggerts, Hrefna Sætr­an og Tim Phil­ips-Johan­son. Ljós­mynd/​Kuba Skw­ara

Dóm­ar­ar loka­kvölds­ins voru Tim Phil­ips-Johan­son sem er sendi­herra Johnnie Wal­ker alþjóðlega, Hrefna Sætr­an frá Fisk­markaðnum, Jakob Eggerts­son sig­ur­veg­ari síðustu World Class-keppni og Jón­as Heiðar sem sigraði World Class árið 2017 en þeir hafa verið þjálf­ar­ar kepp­enda í vet­ur.

Eðal­viskí­kokteill og pop-up bar

Á mánu­dag settu átta barþjón­ar upp pop-up bar þar sem þeir kynntu kokteil gerðan úr dýru eðal­viskíi, Johnnie Wal­ker Blue Label, með inn­blæstri frá tísku og list. Gest­ir fengu miða þar sem þeir gátu valið sinn upp­á­halds­b­ar og var þátt­tak­an frá­bær og hús­fyll­ir all­an tím­ann,“ seg­ir Sól­ey Kristjáns­dótt­ir vörumerkja­stjóri Ölgerðar­inn­ar.

Óvissu­box frá Fisk­markaðnum

Þrír stiga­hæstu sem kepptu uppi á sviði í Iðnó á þriðju­dags­kvöld voru Dag­ur Jak­obs frá Apó­tek­inu, Hrafn­kell Ingi, alla jafna kallaður Keli, frá Skál! og Leó Snæ­feld frá Jungle. Þeir reiddu fram tvo drykki úr óvissukörfu sem Hrefna Sætr­an setti sam­an úr gæðahrá­efn­um sem falla til á Fisk­markaðnum.

„Þar mátti finna áhuga­verð og óvenju­leg hrá­efni eins og saf­ann frá súrsuðum svepp­um og engi­fer, flug­fiska­hrogn, sýróp frá niðursoðnum manda­rín­um, nori-þara, shichimi sjö-krydda­blöndu, saf­ann af kimchi, can­tal­ope mel­ónu, sus­hi hrís­grjón og sæta marín­er­ingu frá miso,“ seg­ir Sól­ey.

Barþjón­arnir höfðu klukku­stund til að vinna með hrá­efn­in í eld­húsi Iðnó og var virki­lega áhuga­vert að sjá og smakka drykk­ina sem komu út úr þess­ari áskor­un. Barþjón­ar gerðu drykki fyr­ir fram­an dóm­nefnd og voru tengd­ir hljóðnema svo áhorf­end­ur gátu fylgst vel með,“ bæt­ir Sól­ey við.

Hraðakeppni - 6 kokteil­ar á 6 mín­út­um

Kvöldið náði há­marki í hraðakeppn­inni þar sem efstu þrír barþjón­ar fengu pönt­un með 6 drykkj­um sem þeir vissu ekki fyr­ir­fram. Þeir höfðu 5 mín­út­ur til að und­ir­búa bar­inn eft­ir að sjá pönt­un­ina og síðan hófst tíma­tak­an, 6 mín­út­ur. Til að gæta jafn­ræðis fengu all­ir barþjón­arn­ir sömu drykkjarpönt­un og svo áttu dóm­ar­ar að upp­lýsa hvort þeir myndu borga fyr­ir drykk­inn eða ekki með grænu eða rauðu flaggi.

 

Þeir þrír sem kepptu í undanúrslitum keppninar, Keli frá Skál!, …
Þeir þrír sem kepptu í undanúr­slit­um keppnin­ar, Keli frá Skál!, Leó frá Jungle og Dag­ur frá Apó­tek­inu. Ljós­mynd/​Kuba Skw­ara
Jakob Eggerts tilkynnir úrslitin.
Jakob Eggerts til­kynn­ir úr­slit­in. Ljós­mynd/
Leó klárar að gera sinn kokteil.
Leó klár­ar að gera sinn kokteil. Ljós­mynd/​Kuba Skw­ara
Dagur Jakobs frá Apótekinu við barinn.
Dag­ur Jak­obs frá Apó­tek­inu við bar­inn. Ljós­mynd/​Kuba Skw­ara
Keli frá Skál!
Keli frá Skál! Ljós­mynd/​Kuba Skw­ara
Salurinn í Iðnó var fullur af áhorfendum.
Sal­ur­inn í Iðnó var full­ur af áhorf­end­um. Ljós­mynd/​Kuba Skw­ara
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert