Sumarístertan hennar Lindu Ben fullkomnar kvöldið

Mögulega einfaldasta ístertan sem hægt er að gera á skömmum …
Mögulega einfaldasta ístertan sem hægt er að gera á skömmum tíma. Ljósmynd/Linda Ben

Á fal­leg­um sum­ar­degi er ekk­ert meiri nostal­g­ía að bjóða upp á ís­tertu í eft­ir­rétt sem full­komn­ar dag­inn. Meðan veður­blíðan leik­ur við lands­menn er ráð að leika sér með eft­ir­rétti sem eiga við.

Linda Ben upp­skrifta­höf­und­ur á heiður­inn af þess­ari ís­tertu sem all­ir ráða við að gera. Hún er með mar­ens, ís, súkkulaði, rjóma og fersk­um berj­um. Frísk­andi ís­bomba sem all­ir sæl­ker­ar eiga eft­ir að fá dá­læti af.

Sumarístertan hennar Lindu Ben fullkomnar kvöldið

Vista Prenta

Sumarís­terta

  • Til­bú­inn mar­ens­botn
  • 1 l vanill­ur­jómaís
  • 200 g (2 pok­ar) Smash súkkulaði
  • 250 ml rjómi
  • Fersk ber að eig­in vali, t.d. jarðarber, hind­ber, rifs­ber, blá­ber eða bróm­ber

Aðferð:

  1. Setjið smellu­hring­form án botns­ins á kökudisk, at­hugið hvort disk­ur­inn kom­ist ekki ör­ugg­lega fyr­ir í fryst­in­um.
  2. Brjótið mar­ens­botn­inn niður og setjið á kökudisk­inn með smellu­forms­hringn­um.
  3. Setjið vanilluís­inn, sem þarf að vera svo­lítið mjúkur, ofan á mar­ens­inn og pressið hann niður.
  4. Raðið Smash-súkkulaðinu ofan í ís­inn þannig að mjói end­inn snúi niður í ís­inn.
  5. Smellið öllu í frysti þar til ís­inn hef­ur náð að harðna aft­ur.
  6. Takið úr frysti og fjar­lægið smellu­forms­hring­inn, þeytið rjóma og setjið ofan á ís­tert­una.
  7. Skreytið með meira Smash-súkkulaði og berj­um eins og ykk­ur lang­ar til.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert