„Að vera íþróttakona er fullt starf allan sólarhringinn“

Hafdís Renötudóttir Valsari og atvinnumaður í handbolta stendur í stórræðum …
Hafdís Renötudóttir Valsari og atvinnumaður í handbolta stendur í stórræðum þessa dagana en á morgun, laugardaginn 17. maí, mun hún spila stórleik með handboltaliðinu sínu Val, hreina úrslitaleik í EHF European Cup á Hlíðarenda. Ljósmynd/Aðsend

Haf­dís Renötu­dótt­ir Vals­ari og at­vinnumaður í hand­bolta af­hjúp­ar hér nokkr­ar staðreynd­ir um mat­ar­venj­ur sín­ar fyr­ir les­end­um. Hún stend­ur í stór­ræðum þessa dag­ana en á morg­un, laug­ar­dag­inn 17. maí, mun hún spila stór­leik með hand­boltaliðinu sínu Val, hreina úr­slita­leik í EHF Europe­an Cup á Hlíðar­enda.

Hún elsk­ar að spila hand­bolta, borða góðan mat og njóta lífs­ins.

Á dag­inn vinn ég hjá raf­orku­söl­unni Straumlind. Þar líður mér mjög vel og ég mæli með að fólk geri verðsam­an­b­urðinn og komi í viðskipti til Straumlind­ar. Svo er það hand­bolt­inn sem á allt mitt líf,“ seg­ir Haf­dís með bros á vör. 

Hafdís spilar með Val og er afar ánægð á Hlíðarendanum.
Haf­dís spil­ar með Val og er afar ánægð á Hlíðar­end­an­um. mbl.is/​Há­kon

Aldrei áður hef­ur kvennalið á Íslandi kom­ist alla leið í úr­slit­in

Það er allt und­ir hjá okk­ur í bolt­an­um næstu daga, á laug­ar­dag­inn erum við að spila hrein­an úr­slita­leik í EHF Europe­an Cup, en við gerðum jafn­tefli í fyrri úr­slita­leikn­um. Það er stór­kos­leg­ur ár­ang­ur að kom­ast alla leið í úr­slit­in, eitt­hvað sem ekk­ert kvennalið á Íslandi hef­ur náð að gera, en ég held að það liggi í aug­um uppi að við vilj­um all­ar klára verk­efnið með stæl,“ seg­ir Haf­dís ákveðin.

Svo á þriðju­dag­inn hefst úr­slita­keppn­in í Íslands­mót­inu þar sem að við mæt­um Hauk­um. Það lið sem vinn­ur þrjá leiki end­ar uppi sem Íslands­meist­ari. Við í liðinu erum all­ar mikl­ar keppn­ismann­eskj­ur, setj­um all­ar hand­bolt­ann í fyrsta sætið, og því setj­um við líka pressu á okk­ur að klára þau verk­efni sem fram und­an eru af fag­mennsku,“ bæt­ir Haf­dís við.

Hafdís er líka landsliðskona í íslenska handboltaliðinu enda mikil keppnismanneskja.
Haf­dís er líka landsliðskona í ís­lenska hand­boltaliðinu enda mik­il keppn­ismann­eskja. Ljós­mynd/​Jón For­berg

Eld­ar kvöld­mat á hverj­um degi

Til að ná ár­angri í hand­bolta og kom­ast sem lengst seg­ir Haf­dís það skipta sköp­un að nær­ast rétt, ekki síst fyr­ir stór­leiki. Hún er mjög meðvituð um að nær­ing­in skipti sköp­un.

„Það er í for­gangi hjá mér að setja réttu hlut­ina ofan í mig alla daga árs­ins, og þá sér­stak­lega fyr­ir stóru leik­ina. Að vera íþrótta­kona er fullt starf all­an sól­ar­hring­inn.

Ég hef verið veg­an síðan árið 2013, það er kannski skemmti­leg staðreynd um mat­ar­venj­ur mín­ar. Sem íþrótta­kona þarf ég að borða enda­laust af mat og holl­an mat, en ég er líka al­gjör nautna­segg­ur. Ég bý svo vel að eiga góða konu, en unn­usta mín, hún Krist­ín, eld­ar kvöld­mat á hverj­um degi, og því fer ég alla daga beint heim í heita máltíð eft­ir æf­ingu. Hún er best,“ seg­ir hún og bros­ir all­an hring­inn.

„Á sumr­in skipt­um við al­veg um gír þegar kem­ur að elda­mennsk­unni. Við tök­um upp grillið og grill­um mikið. Svo hef­ur maður loks­ins tíma á sumr­in til að hitta vini og socializa, og því för­um við aðeins meira út að borða,“ bæt­ir Haf­dís við og fagn­ar því að veður­spá­in sé góð alla helg­ina sem þýðir gott grill­veður.

Aldrei í líf­inu sleppt há­deg­is­mat

Haf­dís gaf sér tíma á milli æf­inga að svara nokkr­um praktísk­um spurn­ing­um um mat­ar­venj­ur sín­ar og læt­ur allt flakka.

Hvað færðu þér í morg­un­mat?

Ég reyni að skella þeyt­ing ofan í mig.

Borðar þú oft á milli mála og hvað þá helst?

Já, ég borða alla vega á svona 3 klukku­stunda fresti, en ég reyni að vinna með ávexti, hrökkk­ex og pró­tínstykki.

Finnst þér ómiss­andi að borða há­deg­is­verð?

Al­gjör­lega, ég hef aldrei í líf­inu sleppt því að borða há­deg­is­mat.

Hvað áttu alltaf til í ís­skápn­um?

Ég á alltaf til fulla skúffu af græn­meti, tofu og sojamjólk.“

Þegar þú ætl­ar að gera vel við þig í mat og drykk og vel­ur veit­ingastað til að fara á,hvert ferðu?

Ef ég ætla að gera vel við mig þá elska ég að fá mér sus­hi og áfeng­is­laus­an bjór.

Hvað vilt þú á pítsuna þína?

Veg­an pepp­eróní, veg­an ost, sveppi, jalapenó, an­an­as og svart­ar ólíf­ur. Við eig­um góðan pítsastein heima og ger­um virki­lega góða heima­gerða pítsu.“

Fær Ellu Stínu pylsu

Hvað færð þú þér á pyls­una þína?

Ég fæ mér Ellu Stínu pyls­una með veg­an remúlaði, sinn­epi og tóm­atsósu, með steikt­um lauk og extra rauðlauk.“

Hver er upp­á­halds­grill­rétt­ur­inn þinn?

, ég elska Juicy Mar­bles á grillið, góða bakaða kart­öflu, grillaða sveppi og græn­meti, og svo al­menni­lega af hvít­lauks­grillsósu.

Áttu grill? Hvort heill­ar þig meira gas- eða kola­grill?

Grillið mitt er gasgrill en ég á mér draum að eign­ast Big Green Egg“-grillið.

Hvort vel­ur þú kart­öfl­ur eða sal­at á disk­inn þinn?

Ég þarf alltaf eitt­hvað ferskt með hverri máltíð og því vel ég sal­at. Kart­öfl­ur eiga samt hjartað mitt.

Upp­á­halds­drykk­ur­inn þinn?

Án gríns þá verð ég að segja ískalt vatn.

Er með æði fyr­ir súkkulaðihúðuðum bön­un­um

Hvað er það versta sem þú hef­ur bragðað?

Ég borða eig­in­lega all, sem er veg­an, en ég elska ekki eggald­in.“

Ertu með æði fyr­ir ein­hverju þessa dag­ana?

, ég er með æði fyr­ir því að gera súkkulaðihúðaða ban­ana með hnetu­smjöri ofan á og set í fryst­inn og fæ mér sem eft­ir­rétt eft­ir kvöld­mat.

 

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert