Ný og glæsileg lágvöruverðsverslun Nettó hefur nú opnað í Glæsibæ, í nýuppgerðu og töluvert stærra rými en Iceland-verslunin sem var þar fyrir. Staðsetningin í Glæsibæ er tilvalin fyrir lágvöruverðsverslun, enda sækja fjölmargir nú þegar fjölbreytta þjónustu og sérverslanir í verslunarkjarnann, þar sem aðgengi er gott og fjöldi bílastæða í boði að því fram kemur í tilkynningu frá Nettó.
„Við vitum að viðskiptavinir okkar eru spenntir fyrir komu Nettó í hverfið og okkur hefur þótt leiðinlegt að þeir hafi þurft að bíða eftir opnuninni. Við vonum að biðin hafi verið þess virði, enda er verslunin stórglæsileg og getum við nú boðið enn lægra verð í enn stærri verslun en þeirri sem áður var til staðar. Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum í Glæsibæ,“ Bóas Bóasson, rekstrarstjóri Nettó.
Tekin var ákvörðun árið 2022 að leggja niður verslunarkeðjuna Iceland hér á landi en verslanir í Engihjalla og Seljahverfi breyttust í Nettó-verslanir árin 2023 og 2024 og var nú komið að versluninni í Glæsibæ. Breytingarnar hafa ekki áhrif á starfsfólk sem heldur áfram störfum hjá Samkaupum.
Nettó er í vaxtarham og hefur jafnframt unnið hart að því að lækka vöruverð síðastliðið ár. Tilkoma Nettó í Glæsibæ er því kærkomin viðbót fyrir íbúa á svæðinu, en líka þá sem eiga leið um hverfið í öðrum erindagjörðum, enda er verslunin miðsvæðis í borginni.
„Við vitum að staðsetning matvöruverslana skiptir viðskiptavini máli, þeir vilja fara í þá búð sem er næst þeirra heimili eða á leið þeirra um borgina. Við Glæsibæ höfum við rótgróna íbúðabyggð og er staðsetningin því tilvalin fyrir lágvöruverðsverslun eins og Nettó sem leggur einnig áherslu á vöruúrval og gæði fyrir viðskiptavini,“ bætir Bóas við.
Samkaup reka 65 verslanir víðs vegar um landið undir merkjum Nettó, Krambúðarinnar, Kjörbúðarinnar og Iceland. Hjá félaginu starfa um 1.250 starfsmenn í rúmlega 660 stöðugildum.