Glæsileg opnunarhátíð og freyðandi stemning allsráðandi

Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar og Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaups klipptu …
Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar og Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaups klipptu saman á borðann og innsigluðu þar með nýjan kafla í snyrtivörusögu verslunarinnar og fögnuðu með freyðandi drykkjum. Ljósmynd/Róbert Arnar Óttarsson

Það var sann­kölluð stemn­ing í Hag­kaup Garðabæ, fimmtu­dag­inn 15. maí, þegar ný og glæsi­leg snyrti­vöru­deild var opnuð form­lega við hátíðlega at­höfn. Alm­ar Guðmunds­son bæj­ar­stjóri Garðabæj­ar og Sig­urður Reyn­alds­son fram­kvæmda­stjóri Hag­kaups klipptu sam­an á borðann og inn­sigluðu þar með nýj­an kafla í snyrti­vöru­sögu versl­un­ar­inn­ar að því fram kem­ur í til­kynn­ingu frá Hag­kaup.

Freyðandiu drykk­ir og makkarón­ur

Gest­ir voru boðnir vel­komn­ir með makkarón­um, freyðandi drykkj­um og skemmti­legri tónlist sem skapaði létta og skemmti­lega stemn­ingu á staðnum.

Boðið upp á freyðandi drykkir og makkarónur í tilefni opnuninnar.
Boðið upp á freyðandi drykk­ir og makkarón­ur í til­efni opn­un­inn­ar. Ljós­mynd/​Ró­bert Arn­ar Ótt­ars­son

Opn­un­in er hluti af mark­vissri stefnu Hag­kaups um að styrkja stöðu sína á snyrti­vörumarkaði og bjóða upp á ein­staka versl­unar­upp­lif­un. Nýja deild­in er hönnuð með það í huga að hver heim­sókn verði bæði ný­stár­leg og spenn­andi fyr­ir viðskipta­vini.

„Þetta er mik­il­væg­ur áfangi í þróun fyr­ir­tæk­is­ins,“ seg­ir Sig­urður Reyn­alds­son. „Við hóf­um þessa veg­ferð árið 2016 með end­ur­gerð snyrti­vöru­deilda í Smáralind og Kringl­unni, og síðan hafa aðrar versl­an­ir fylgt í kjöl­farið – þar á meðal Skeif­an, Ak­ur­eyri og Spöng­in. Með opn­un­inni í Garðabæ erum við að leggja loka­hönd á þessa upp­bygg­ingu og niðurstaðan er eitt­hvað sem við erum ein­stak­lega stolt af.“

Bæta vöru­fram­boð og versl­unar­upp­lif­un

Sam­kvæmt Sig­urði hef­ur sal­an á snyrti­vör­um hjá Hag­kaup auk­ist veru­lega á und­an­förn­um árum. Þessi þróun end­ur­spegl­ar bæði vax­andi áhuga ís­lenskra neyt­enda og þá miklu vinnu sem lögð hef­ur verið í að bæta vöru­fram­boð og versl­unar­upp­lif­un.

„Við leggj­um metnað í að mæta kröf­um og ósk­um viðskipta­vina okk­ar, ekki aðeins með breiðu úr­vali af vör­um, held­ur með því að skapa heild­ræna og eft­ir­minni­lega upp­lif­un. Nýja deild­in í Garðabæ er glöggt dæmi um þá sýn,“ seg­ir hann enn frem­ur.

Að lok­um und­ir­strik­ar Sig­urður að mark­mið Hag­kaups sé skýrt: að vera leiðandi á sviði snyrti­vöru­versl­un­ar á Íslandi. „Við höld­um ótrauð áfram á þeirri veg­ferð – og opn­un­in í Garðabæ er stórt og spenn­andi skref í rétta átt.“

Blöðrur prýddu verslunina sem var vel skreytt í tilefni dagsins.
Blöðrur prýddu versl­un­ina sem var vel skreytt í til­efni dags­ins. Ljós­mynd/​Ró­bert Arn­ar Ótt­ars­son
Eva Laufey Kjaran markaðs- og upplifunnarstjóri hjá Hagkaup og Helga …
Eva Lauf­ey Kjaran markaðs- og upp­lif­unn­ar­stjóri hjá Hag­kaup og Helga Magga heil­su­markþjá­fli tóku þátt í fögnuðinum. Ljós­mynd/​Ró­bert Arn­ar Ótt­ars­son
Hátíðlegt var um að litast í versluninni í tilefni þessa.
Hátíðlegt var um að lit­ast í versl­un­inni í til­efni þessa. Ljós­mynd/​Ró­bert Arn­ar Ótt­ars­son
Helga Magga.
Helga Magga. Ljós­mynd/​Ró­bert Arn­ar Ótt­ars­son
Lukkuhjól var til staðar.
Lukku­hjól var til staðar. Ljós­mynd/​Ró­bert Arn­ar Ótt­ars­son
Fjölmenni kom á opnunarhátíðina.
Fjöl­menni kom á opn­un­ar­hátíðina. Ljós­mynd/​Ró­ber Arn­ar Ótt­ars­son
Klippt á borðann.
Klippt á borðann. Ljós­mynd/​Ró­bert Arn­ar Ótt­ars­son
Ljós­mynd/​Ljós­mynd/​Ró­bert Arn­ar Ótt­ars­son
Gleðin var í fyrirrúmi.
Gleðin var í fyr­ir­rúmi. Ljós­mynd/​Ró­bert Arn­ar Ótt­ars­son
Mikil ánægja með nýju deildina.
Mik­il ánægja með nýju deild­ina. Ljós­mynd/​Ró­bert Arn­ar Ótt­ars­son
Þau sáu um að bjóða gestum og gangandi upp á …
Þau sáu um að bjóða gest­um og gang­andi upp á freyðandi drykk­ir og makkarón­ur Ljós­mynd/​Ró­bert Arn­ar Ótt­ars­son
Mættar í snyrtivörudeildina.
Mætt­ar í snyrti­vöru­deild­ina. Ljós­mynd/​Ró­bert Arn­ar Ótt­ars­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert