Lemon-curd snúðar með sítrónu-ostakremi sem eru hættulega góðir

Gómsætir snúðar með lemon curd.
Gómsætir snúðar með lemon curd. mbl.is/Eyþór

Stund­um þarf eitt­hvað sem sker sig úr, eitt­hvað sem er bæði létt og djúsí, með fersk­an karakt­er og silkimjúka áferð. Þess­ir lemon-curd snúðar sam­eina súr­an sæt­leik­ann úr sítr­ón­unni og mjúka fyll­ingu í hverj­um bita.

Þeir eru full­komn­ir þegar ykk­ur lang­ar í eitt­hvað öðru­vísi en hefðbundna kanil­snúða – bæði lit­rík­ir og ein­stak­lega bragðgóðir. Með sítr­ónu-ostakremi ofan á verða þeir nán­ast hættu­lega góðir.

Þetta er ein­föld upp­skrift með óvænt­um lúx­us og kem­ur úr smiðju Árna Þor­varðar­son­ar bak­ara og fag­stjóra við Hót­el- og mat­væla­skól­ann í Kópa­vogi sem kann svo sann­ar­lega að gleðja les­end­ur með góm­sæt­um upp­skrift­um að snúðum.

Enginn hefur deilt jafnmörgum uppskriftum að snúðum eins og Árni …
Eng­inn hef­ur deilt jafn­mörg­um upp­skrift­um að snúðum eins og Árni Þor­varðar­son bak­ari. Því­lík upp­lif­un að bragða á þess­um snúðum, hreint sæl­gæti að njóta. mbl.is/​Eyþór Árna­son

Lemon-curd snúðar með sítrónu-ostakremi sem eru hættulega góðir

Vista Prenta

Lemon curd snúðar með sítr­ónu-ostakremi

Deig

  • 300 g volgt vatn
  • 60 g syk­ur
  • 4 msk. olía
  • 1 tsk. salt
  • 1 msk. þurr­ger
  • 600 g hveiti

Fyll­ing

  • 230 g Good Good lemon curd

Sítr­ónu-ostakrem

  • 40 g rjóma­ost­ur
  • 75 g mjúkt smjör
  • 1 tsk. vanillu­drop­ar
  • 200 g flór­syk­ur
  • 20 g lemon-curd

Aðferð:

  1. Byrjið á því að virkja gerið með því að blanda því sam­an við volgt vatn og syk­ur.
  2. Leyfið því að freyða og koma sér í gang, bætið olíu og salti við, og síðan hveit­inu smátt og smátt.
  3. Hnoðið þar til deigið er mjúkt, slétt og aðeins klístrað – þetta er hjartað í góðum snúðum.
  4. Setjið deigið í skál, breiðið viska­stykki yfir og leyfið því að hef­ast í ró og næði í um 15 mín­út­ur.
  5. Rúllið næst deig­inu út í stór­an fer­hyrn­ing og smyrjið lemon-cur­d­inu yfir.
  6. Rúllið upp í þétta rúllu og skerið í sneiðar með beitt­um hníf.
  7. Raðið snúðunum í bök­un­ar­form og leyfið þeim að lyfta sér aft­ur í um það bil 40 mín­út­ur, svo þeir verði létt­ir og mjúk­ir.
  8. Bakið við 180°C í 12-15 mín­út­ur þar til snúðarn­ir verða gull­in­brún­ir og ilm­ur­inn fyll­ir húsið.
  9. Smyrjið sítr­ónukrem­inu yfir á meðan snúðarn­ir eru enn heit­ir. Kremið bráðnar ofan í hverja rifu og ger­ir hvern bita silkimjúk­an og synd­sam­lega góðan.
  10. Það er líka fal­legt er að sprauta lemon-curd yfir snúðana með krem­inu
  11. Kremið er best sett á þegar snúðarn­ir eru volg­ir – ekki heit­ir, svo þeir bráðni ekki al­veg, en samt nógu hlý­ir til að kremið mýk­ist ör­lítið og renni ör­lítið niður hliðarn­ar.
  12. Þið getið smurt því á með skeið, spaða eða sprautu­poka ef þið viljið fá fal­lega út­litsáherslu.
  13. Ef þið viljið extra sítr­ónu­keim, má strá smá sítr­ónu­börk yfir rétt áður en snúðarn­ir eru born­ir fram.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert