Nú geta aðdáendur Lakrids by Bülow fagnað

Sumarlínan frá Lakrids by Bülow er lent á Íslandi og …
Sumarlínan frá Lakrids by Bülow er lent á Íslandi og mun án efa gleðja lakkrísunnendur. Ljósmynd/Aðsend

Sum­ar­lín­an frá Lakrids by Bülow er lent á Íslandi og er að gleðja lakk­rís­unn­end­ur í sól­skin­inu þessa dag­ana.

Nýja sum­ar­lín­an er stút­full af ómót­stæðileg­um bragðsam­setn­ing­um og er full­kom­in gjöf fyr­ir hvaða sum­ar­til­efni sem er, að mínu mati,“ seg­ir Svana Lovísa Kristjáns­dótt­ir, sam­fé­lags­miðlari hjá Epal.

Um er að ræða tvær tegundir af lakkrís, annars vegar …
Um er að ræða tvær teg­und­ir af lakk­rís, ann­ars veg­ar Pink Pineapple og hins veg­ar Lemon. Ljós­mynd/​Aðsend

Tvær teg­und­ir um að ræða

Um er að ræða tvær teg­und­ir af lakk­rís, ann­ars veg­ar Pink Pineapple og hins veg­ar Lemon.

Pink Pineapple er splunku­ný bragðteg­und, með sætri og mjúkri lakk­rísmiðju sem hjúpuð er hvítu rjómasúkkulaði með fersk­um og fram­andi keim af an­an­as, og að lok­um um­lukin bleikri syk­ur­skel. Þess­um bleiku mola eru ætlaðir stór­ir hlut­ir, með glæsi­lega ein­kunn 4,5 frá Lakrids Lovers Taste Panel-smakkráðinu.

Pink Pineapple er splunkuný bragðtegund.
Pink Pineapple er splunku­ný bragðteg­und. Ljós­mynd/​Aðsend

„Pink Pineapple mun hrífa þig til suðrænn­ar para­dís­ar,“ seg­ir Svana enn frem­ur.

Lemon er blanda af sölt­um lakk­rís og ein­um fersk­asta ávexti úr nátt­úr­unni, sítr­ónu. Mjúk lakk­rísmiðjan er hjúpuð með hvítu súkkulaði, rjóma og vanillu til að tryggja full­komið jafn­vægi á milli þess sæta, súra og salta.

Lemon er blanda af söltum lakkrís og sítrónu.
Lemon er blanda af sölt­um lakk­rís og sítr­ónu. Ljós­mynd/​Aðsend

Búið til úr nátt­úru­leg­um hrá­efn­um

„Allt sam­an út­búið úr nátt­úr­legu hrá­efn­un­um og fær­ir þér bragðið af para­dís í hverj­um bita og breyt­ir hverri stund í lítið frí,“ seg­ir Svana sem er mik­ill aðdá­andi lakk­rís­ins.

Nýja sum­ar­lín­an fæst meðal ann­ars í lífs­stíls- og hönn­un­ar­versl­un­inni Epal.

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert