Vinsælustu grillspjótin sem hafa slegið í gegn

Grillaður humar, grillaður ostur, grillað grænmeti og nautakjöt eru allt …
Grillaður humar, grillaður ostur, grillað grænmeti og nautakjöt eru allt saman góðar hugmyndir. Samsett mynd

Þessa dag­ana eru næst­um all­ir í grillstuði og þá er gam­an að prófa nýj­ar upp­skrift­ir. Þess­ar upp­skrift­ir að grill­spjót­um hafa slegið í gegn á mat­ar­vefn­um gegn­um tíðina sem all­ar bjóða upp á skemmti­leg­ar bragðupp­lif­an­ir fyr­ir bragðlauk­ana.

Hér er á ferðinni und­ur­sam­legt og sum­ar­legt sal­at með grilluðum humri úr smiðju Berg­lind­ar Hreiðars hjá Gotte­rí og ger­sem­ar.

Grilluð humarspjót borin fram á girnilegu salati.
Grilluð humarspjót bor­in fram á girni­legu sal­ati. Ljós­mynd/​Berg­lind Hreiðars

Grill­spjót með osti og græn­meti sem góm­sætt er að njóta en ost­ur­inn minn­ir einna helst á Halloumi-ost sem ostaunn­end­ur hafa mikl­ar mæt­ur á. Þessi upp­skrift kem­ur líka úr smiðju Berg­lind­ar Hreiðars.

Grillaður ostur og grænmeti sem gleður bragðlaukana.
Grillaður ost­ur og græn­meti sem gleður bragðlauk­ana. Ljós­mynd/​Berg­lind Hreiðars

Hér er á ferðinni ein­stak­lega bragðgóður sparirétt­ur sem hitt­ir alltaf í mark enda bragðsam­setn­ing sem get­ur ekki klikkað. Á spjót­inu er nauta­lund með chimi churri en eins og mat­gæðing­ar vita get­ur chimi churri ekki klikkað með grilluðu kjöti. Heiður­inn af þess­ari gleði á mat­gæðing­ur­inn Snorri Guðmunds­son.

Lúxusgrillspjót með nautalund og chimi churri.
Lúx­us­grill­spjót með nauta­lund og chimi churri. Ljós­mynd/​Snorri Guðmunds­son

Þessi dá­sam­legu kjúk­linga­spjót með BBQ og makkarónu­sal­ati er veisla að njóta. Eins og oft áður kem­ur þessi upp­skrift úr smiðju Berg­lind­ar Hreiðars.

BBQ maríneraður kjúklingur á spjóti borin fram með makkarónum sem …
BBQ marín­eraður kjúk­ling­ur á spjóti bor­in fram með makkarón­um sem bráðna í munni. Ljós­mynd/​Berg­lind Hreiðars

Þessi eru sum­ar­leg og góm­sæt að njóta. Kjúk­linga­spjót í sinn­eps- og hvít­laukskrydd­legi, græn­met­is­spjót og dá­sam­leg köld sinn­epssósa með sætu sinn­epi er rétt­ur sem all­ir geta gert. Heiður­inn af þess­ari gleði á Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir mat­ar­blogg­ari.

Kjúklingaspjót í sinneps- og hvítlaukskryddlegi, grænmetisspjót og dásamleg köld sinnepssósa …
Kjúk­linga­spjót í sinn­eps- og hvít­laukskrydd­legi, græn­met­is­spjót og dá­sam­leg köld sinn­epssósa með sætu sinn­epi. Ljós­mynd/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir

 

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert