„Að grilla er eitt það skemmtilegasta sem ég geri“

Ísak Aroni Jóhannssyni finnst langskemmtilegast að grilla og sérstaklega á …
Ísak Aroni Jóhannssyni finnst langskemmtilegast að grilla og sérstaklega á kolum sem gefur svo gott bragð og áferð. mbl.is/Karítas

Ilm­ur­inn af grilluðum kræs­ing­um er í loft­inu þessa dag­ana og landsliðskokk­arn­ir leika við hvern sinn fing­ur. Það á meðal Ísak Aron Jó­hanns­son.

Ísak er fyr­irliði kokka­landsliðsins og lyk­il­starfsmaður hjá Múlakaffi. Hann er mik­ill grill­ari, að eig­in sögn, og kemst í grillstuð þegar sól­in skín. Hann gef­ur les­end­um upp­skrift að ein­um af upp­á­halds­grill­rétt­um sín­um, sem er nauta­lund bor­in fram með girni­legu meðlæti.

Grilluð nautalund með chimichurri, grilluðum kartöflum, rifnum osti og flatbrauði …
Grilluð nauta­lund með chimichurri, grilluðum kart­öfl­um, rifn­um osti og flat­brauði sem kem­ur bragðlauk­un­um á flug. mbl.is/​Karítas

Ísak hef­ur verið í ís­lenska kokka­landsliðinu frá ár­inu 2019 en hann vann einnig keppn­ina um eft­ir­rétt árs­ins árið 2022 og var í 2. sæti í keppn­inni um kokk árs­ins 2024. Hann stefn­ir á að vinna Kokk árs­ins 2026 ásamt því að leiða liðið til sig­urs á heims­meist­ara­mót­inu í Lúx­em­borg í nóv­em­ber á næsta ári.

Ísak var einnig fyr­irliði þegar liðið tryggði sér 3. sætið á Ólymp­íu­leik­un­um í fyrra, sem frægt er. „Kjarni þess liðs ætl­ar sér að keppa á næsta móti en öll reynsla skipt­ir gríðarlega miklu máli. Liðið æfir nú stíft áður en það fer í sum­ar­frí en byrj­ar síðan strax aft­ur í ág­úst þegar all­ir hafa náð að hlaða batte­rí­in.“

Lang­skemmti­leg­ast að grilla þegar sól­in skín

Aðspurður seg­ist Ísak vera mik­ill grill­ari og þegar það er bongóblíða eins og síðustu daga sé grillið aðal­málið. Þegar úti­leg­ur eru ann­ars veg­ar finnst hon­um líka ómiss­andi að vera með kola­grill við hönd­ina.

„Að grilla er eitt það skemmti­leg­asta sem ég geri. Hvort sem það er steik, fisk­ur, græn­meti eða brauð þá er ég alltaf til, og það sama á við um hvernig viðrar, þótt auðvitað sé lang­skemmti­leg­ast að grilla þegar sól­in skín. Ég er mest hrif­inn af kol­um á grillið, það gef­ur svo skemmti­legt bragð, en gasgrillið er einnig góður kost­ur og hent­ugt ef á að henda ein­hverju fljót­legu á grillið,“ seg­ir Ísak með bros á vör.

„Þegar ég er heima að grilla reyni ég að grilla allt meðlætið fyr­ir mat­ar­boðið og þá meina ég að búa til flat­brauð, grilla kart­öfl­ur og græn­meti svo dæmi séu tek­in. Það er virki­lega gam­an og mér finnst gott að sleppa al­veg við ofn­inn þótt hann komi sér stund­um vel.

Í úti­leg­um og þess hátt­ar finnst mér einnig gam­an að grilla meðlætið en þá á maður það samt stund­um til að svindla og taka með sér til­búið meðlæti sem er und­ir­búið heima fyr­ir ferðalagið, til að geta notið meira í úti­leg­unni,“ bæt­ir Ísak við og glott­ir.

Grillað flatbrauð passar ákaflega vel með nautalundinni og ferska steinseljan …
Grillað flat­brauð pass­ar ákaf­lega vel með nauta­lund­inni og ferska stein­selj­an og sjáv­ar­saltið setja punkt­inn yfir i-ið. mbl.is/​Karítas

„Einn af mín­um upp­á­halds­grill­rétt­um er grilluð nauta­lund ásamt chimichurri, grilluðum kart­öfl­um, par­mes­an og grilluðu flat­brauði. Þessi rétt­ur er til­val­inn til að deila með vin­um og fjöl­skyld­um, rétt­ur­inn er fram­reidd­ur á skurðarbretti þar sem lund­in er skor­in og chimichurri-sósu, rifn­um par­mes­an og grilluðum kart­öfl­um er bætt við. Flat­brauðið kem­ur síðan sterkt inn sem af­bragðsfyll­ing með nógu af smjöri og salti.“

Kartöflurnar eru sérstaklega girnilegar grillaðar og bornar fram með parmesanosti.
Kart­öfl­urn­ar eru sér­stak­lega girni­leg­ar grillaðar og born­ar fram með par­mesanosti. mbl.is/​Karítas

„Að grilla er eitt það skemmtilegasta sem ég geri“

Vista Prenta

Nauta­lund með chimichurri, grilluðum kart­öfl­um, par­mes­an og flat­brauði

Fyr­ir 4

Grilluð nauta­lund

  • 1 stk. nauta­lund, 1,2 kg
  • verkuð olía eft­ir smekk
  • salt og pip­ar eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Takið nauta­lund­ina úr kæli a.m.k. klukku­tíma áður en á að grilla hana.
  2. Veltið henni upp úr olíu, salti og pip­ar.
  3. Skellið lund­inni á grillið og fáið flott­ar rend­ur í hana, setjið hana næst í eld­fast mót og skellið henni inn í ofn á 120°C.
  4. Þegar kjarn­hita­mæl­ir­inn píp­ir í 52°C, takið þá lund­ina út og leyfið að hvíla í 10-15 mín­út­ur.
  5. Skerið lund­ina í fernt þvers­um og næst í litla bita, dreifið síðan chimichurri yfir bit­ana ásamt grilluðum kart­öfl­um, rifn­um par­mes­an og sjáv­ar­salti.

Chimichurri

  • 100 g stein­selja
  • 100 g kórí­and­er
  • 2 stk. chilli, án fræja
  • 3 stk. hvít­lauks­geir­ar
  • 1⁄2 lít­ill rauðlauk­ur
  • 200 ml ólífu­olía
  • 50 ml rauðvín­se­dik
  • sjáv­ar­salt, eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Saxið stein­selju, kórí­and­er, chilli, rauðlauk og hvít­lauks­geira smátt og blandið sam­an í skál ásamt rest af hrá­efn­um.
  2. Smakkið til með sjáv­ar­salti og leyfið sós­unni að jafna sig inni í kæli í a.m.k. 8 klukku­stund­ir.

Grillaðar kart­öfl­ur

  • 600 g smá­ar kart­öfl­ur eða smælki
  • ólífu­olía eft­ir smekk
  • salt og pip­ar eft­ir smekk
  • smjörklípa
  • par­mesanost­ur eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ofn­inn í 180°C.
  2. Setjið kart­öfl­urn­ar í eld­fast mót með ólífu­olíu og kryddið til með salti og pip­ar.
  3. Setjið inn í ofn og bakið við 180°C í 30 mín­út­ur.
  4. Þetta er til­valið að gera dag­inn áður ef t.d. á að fara í úti­legu.
  5. Hitið næst grillið vel og veltið kart­öfl­um aft­ur upp úr olíu, skellið kart­öfl­un­um á grillið og grillið þar til þær eru orðnar stökk­ar og fal­leg­ar.
  6. Gott er að setja kart­öfl­urn­ar í skál og klára þær með því að velta þeim upp úr meira salti og jafn­vel smjörklípu.
  7. Í lok­in er gott að setja smá rif­inn par­mesanost yfir.

Grillað flat­brauð

  • 400 g hveiti
  • 1 tsk. salt
  • 1 tsk. ger
  • 11⁄4 bolli volgt vatn
  • 1⁄4 bolli ólífu­olía, ásamt meiru til að pensla
  • sjáv­ar­salt
  • 4 hvít­lauks­geir­ar, saxaðir smátt
  • 30 g stein­selja, söxuð smátt

Aðferð:

  1. Byrjið á því að taka til stóra skál og setjið í hana hveiti, salt og ger og blandið sam­an.
  2. Bætið við volgu vatni og olíu. Blandið vel sam­an með deig­hræra/​hnoðara í hræri­vél á miðlungs­hraða í 3-4 mín­út­ur eða þar til deigið er hætt að lím­ast við skál­ina.
  3. Leyfið deig­inu að hvíla í 30-60 mín­út­ur.
  4. Skiptið deig­inu í 4 hluta og fletjið út í hringi, penslið með ólífu­olíu og söxuðum hvít­lauk.
  5. Skellið síðan deig­inu á heitt grillið og látið vera í 1 mín­útu á hvorri hlið á vel heitu grilli. Það á að duga.
  6. Þegar þið takið brauðið af grill­inu dreifið þá saxaðri stein­selju yfir það ásamt sjáv­ar­salti og þá eruð þið kom­in með grillað flat­brauð.
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert