Próteindraumurinn hennar Unnar sem allir geta gert

Unnur Pálmarsdóttir kann að gleðja bragðlaukana með hollum réttum.
Unnur Pálmarsdóttir kann að gleðja bragðlaukana með hollum réttum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Unn­ur Pálm­ars­dótt­ir eig­andi Fusi­on og hópþjálf­ari er snill­ing­ur að búa til holla og góða rétti sem bragðast vel. Hún deil­ir nú með les­end­um mat­ar­vefs­ins upp­skrift að Weeta­bix-próteindraum­in­um sín­um.

„Ég er aðdá­andi Weeta­bix próteins og hér er upp­skrift sem ger­ir ljúf­feng­an, saðsam­an og bragðgóðan morg­un- eða há­deg­is­verð. Það er mjög ein­falt að út­búa dá­semd­ina kvöldið áður og láta það standa í ís­skápn­um yfir nótt­ina og er til­búið um morg­un­inn.

Unnur Pálmarsdóttir er iðin við deila uppskriftum með lesendum.
Unn­ur Pálm­ars­dótt­ir er iðin við deila upp­skrift­um með les­end­um. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Þessi upp­skrift virk­ar líka mjög vel með höfr­um í stað Weeta­bix. Mér finnst gott að nota gríska jóg­úrt þar sem hún er saðsöm og góð. Þið getið líka prófað aðra mögu­leika,“ seg­ir Unn­ur.

Próteindraumurinn hennar Unnar sem allir geta gert

Vista Prenta

Weeta­bix-próteindraum­ur­inn

  • 1 Weeta­bix Prótein
  • 40 ml fjör­mjólk (eða möndl­umjólk)
  • grískt jóg­úrt að vild
  • 2-3 lúk­ur af blá­berj­um, má líka vera með jarðarber eða hind­ber

Val­frjálst

  • 1 tsk. hun­ang eða hnetu­smjör til að dreypa yfir og smá­veg­is af muld­um Weeta­bix og jafn­vel kanil til að toppa dá­semd­ina.

Aðferð:

  1. Myljið Weeta­bix-kexið ofan í skál­ina.
  2. Bætið mjólk­inni út í og fletjið hana út til að búa til botn­inn
  3. Blandið blá­berj­un­um sam­an við gríska jóg­úr­tið og setjið ber­in yfir Weeta­bix-botn­inn.
  4. Dreypið hun­angi og smá muld­um Weeta­bix yfir og geymið í kæli yfir nótt.
  5. Berið síðan fram og skreytið af vild með ykk­ar upp­á­halds.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert