„Þá er það helst ís sem er freistingin“

Jóhannes Ásbjörnsson, betur þekktur sem Jói, er mikill ísmaður og …
Jóhannes Ásbjörnsson, betur þekktur sem Jói, er mikill ísmaður og leyfir sér gjarnan að fá sér ís á milli mála. mbl.is/Karítas

Jó­hann­es Ásbjörns­son, alla jafna kallaður Jói, at­hafnamaður og einn eig­enda Keilu­hall­ar­inn­ar, Skopp og Olifa La Madre Pizza deil­ir með les­end­um skemmti­leg­um staðreynd­um um mat­ar­venj­ur sín­ar að þessu sinni.

Hann hef­ur alltaf haft brenn­andi ástríðu fyr­ir mat og ekki skrýtið að hann sé eig­andi veit­ingastaða hér í borg. „Ég var far­inn að taka yfir elda­mennsk­una á æsku­heim­il­inu snemma á tán­ings­aldri,“ seg­ir Jói sposk­ur á svip.

Jói er ísmaður

Jói svar­ar hér nokkr­um lauflétt­um spurn­ing­um um mat­ar­venj­ur sín­ar sem gef­ur les­end­um inn­sýn í hvað er í upp­á­haldi hjá hon­um þegar mat­ur er ann­ars veg­ar.

Breyt­ast mat­ar­venj­ur þínar á sumr­in?

„Í raun ekki mikið, ég grilla all­an árs­ins hring og í öll­um veðrum. Það er helst að mat­máls­tím­ar verði óreglu­legri sök­um flakks og fría.“

Hvað færðu þér í morg­un­mat?

„Yf­ir­leitt spæld egg, skyr eða búst.“

Borðar þú oft á milli mála og hvað þá helst?

„Ég er ekki mik­ill nart­ari, nokkuð stabíll í 2-3 máltíðum á dag. En auðvitað leyf­ir maður sér smá munað af og til, það er þá helst ís sem er freist­ing­in. Ég er ísmaður.“

Finnst þér ómiss­andi að borða há­deg­is­verð? 

„Nei, alls ekki, ég gríp oft eitt­hvað létt í há­deg­inu. Sér­stak­lega ef ég sé fram á öfl­ug­an kvöld­verð.“

Hvað áttu alltaf til í ís­skápn­um?

„Par­mes­an ost og Hleðslu.“

Þegar þú ætl­ar að gera vel við þig í mat og drykk og vel­ur veit­ingastað til að fara á, hvert ferðu?

„Ég veit að ég er ekki hlut­laus en Olifa La Madre Pizza er dá­sam­leg­ur staður. Svo er það La Prima­vera hjá Leifi vini mín­um.“

Með svarttrufflu­mauki til hliðar

Hvað vilt þú á pítsuna þína?

„Fá en góð álegg. Crudo Burrata-píts­an á Olifa er í miklu upp­á­haldi. Stracia­tella-ost­ur, 24 mánaða hrá­skinka og kletta­sal­at og með svarttrufflu­mauki til hliðar. Ein­föld en mögnuð.“

Hvað færð þú þér á pyls­una þína?

„Allt og mikið af remó.“

Jói á bæði gas- og kolagrill. Hann grillar á gasi …
Jói á bæði gas- og kola­grill. Hann grill­ar á gasi þegar hann er að flýta sér en á kol­um þegar hann get­ur dundað sér. mbl.is/​Karítas

Hver er upp­á­halds­grill­rétt­ur­inn þinn?

„Góð ri­beye-steik klikk­ar aldrei en svo kynnt­ist ég ný­lega picanha-steik og varð strax aðdá­andi. Picanha er vöðvi sem ligg­ur ofan á mjöðminni, ekki jafn meyr og t.d. lund en mik­ill karakt­er í bragðinu.“

Áttu grill? Hvort heill­ar þig meira gas- eða kola­grill?

„Ég á hvort tveggja. Ég grilla á gasi þegar ég er að flýta mér en á kol­um þegar ég get dundað mér. Ég er með Big Green Egg kola­grill sem er virki­lega gam­an að vinna með.“

Hvort vel­ur þú kart­öfl­ur eða sal­at á disk­inn þinn?

„Sal­at. Reyni að halda kart­öfl­um í lág­marki.“

Upp­á­halds­drykk­ur­inn þinn?

„Ískald­ur bjór.“

Jói er með nett æði fyr­ir bústi

Ertu með æði fyr­ir ein­hverju þessa dag­ana?

„Ég er með nett æði fyr­ir ein­földu bústi. Í búst­inu er avóka­dó, ban­ani, hnet­ur og möndl­umjólk.“

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert