Kremuð límónu- og chilisósa sem Jói Fel elskar

Jóhannes Felixsson, alla jafna kallaður Jói Fel, er mikill nautnaseggur …
Jóhannes Felixsson, alla jafna kallaður Jói Fel, er mikill nautnaseggur og elskar fátt meira en ljúffengar sósur sem gera allar máltíðir betri. mbl.is/Karítas

Jó­hann­es Felix­son, bet­ur þekkt­ur und­ir nafni Jói Fel, er meist­ari í sósu­gerð og finnst ómiss­andi að bera fram góðar sós­ur með grill­rétt­un­um sín­um. Ein af hans upp­á­haldssós­um er þessi kremaða límónu- og chil­isósa sem hann seg­ist hrein­lega elska.

„Þessi er al­veg frá­bær með öll­um fiski hvort sem hann er grillaður eða eldaður á pönnu eða í ofni. Hún er mjög fersk með miklu og góðu biti frá chilli og hvít­lauk. Límón­an gef­ur sós­unni fersk­an sum­ar­blæ. Hún er meira segja líka mjög góð með grilluðum kjúk­ling en þá hef ég skellt einni te­skeið af paprikukryddi út í til að fá fal­leg­an lit og meira bragð,“ seg­ir Jói um sós­una sína ljúfu.

Kremuð límónu- og chili-sósa sem Jói Fel segir að sé …
Kremuð límónu- og chili-sósa sem Jói Fel seg­ir að sé al­gjört lostæti að njóta. Ljós­mynd/​Jó­hann­es Felix­son

Kremuð límónu- og chilisósa sem Jói Fel elskar

Vista Prenta

Kremuð límónu- og chil­isósa

  • 2 msk. fersk stein­selja
  • 1 dl ólífu­olía
  • 1 stk. límóna, börk­ur og safi
  • 4-5 stk. hvít­lauks­geir­ar
  • 1 stk. rauður chili, fræhreinsaður
  • 1 msk. hvít­vín­se­dik
  • Salt og pip­ar eft­ir smekk
  • 2 góðar msk. sýrður rjómi

Aðferð:

  1. Setjið allt hrá­efnið í mat­ar­vinnslu­vél nema sýrða rjómann.
  2. Maukið vel sam­an í um það bil tvær mín­út­ur.
  3. Setjið síðan í rest­ina sýrða rjómann sam­an við og vinnið í um það bil 5-10 sek­únd­ur, eða þar til sós­an er kom­in vel sam­an.
  4. Setjið í skál og geymið í kæli þar til þið ætlið að bera hana fram.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert