Löng og erfið glíma við embættismenn

Veitingastaðurinn Kastrup var opnaður var aftur á fimmtudag eftir langa …
Veitingastaðurinn Kastrup var opnaður var aftur á fimmtudag eftir langa baráttu fyrir leyfisveitingu. mbl.is/Karítas

Veit­ingastaður­inn Kast­rup við Hverf­is­götu var opnaður á ný á fimmtu­dags­kvöldið síðastliðið. Aðstand­end­ur veit­ingastaðar­ins sem opnaði loks eft­ir langa bar­áttu fyr­ir leyf­is­veit­ingu, segja far­ir sín­ar ekki slétt­ar í sam­skipt­um við Heil­brigðis­eft­ir­lit Reykja­vík­ur.

Eins og komið hef­ur fram í Morg­un­blaðinu var veit­ingastaðnum lokað í byrj­un maí vegna van­greiddra skatta og gjalda. Fyrri eig­andi náði ekki samn­ing­um við Skatt­inn og tóku aðstand­end­ur 101 hót­els við rekstr­in­um.

Meðal nýrra rekstr­araðila er starfs­fólk sem hef­ur starfað lengi á veit­ingastaðnum. „Kast­rup er einn besti veit­ingastaður­inn í bæn­um og fullt af fólki hef­ur áhuga á að reka hann. En þetta hef­ur verið mik­il glíma við emb­ætt­is­menn Heil­brigðis­eft­ir­lits­ins sem hafa hreyft sig á hraða snigils­ins. Þar inn­an­dyra virðist ríkja viðhorf um að verðmæti verði til úr engu og að emb­ætt­ismaður­inn njóti vaf­ans á kostnað veit­inga­manns­ins. Það verður ekki til snit­sel án þess að kótilett­an sé lam­in,“ seg­ir Ólöf Skafta­dótt­ir, sem hef­ur aðstoðað nýja rekstr­araðila veit­ingastaðar­ins við að opna Kast­rup, létt í bragði.

Tím­inn virt­ist standa í stað

„Gott er að gera upp glímu með góðum mat í góðra vina hópi. Ég vil bjóða strák­un­um í Heil­brigðis­eft­ir­lit­inu í snit­sel um helg­ina og skála við þá.“

Ólöf hef­ur staðið í stafni í bar­áttu fyr­ir enduropn­un Kast­rup. Hún seg­ir að hug­ar­fars­breyt­ing­ar sé þörf inn­an stjórn­valds­ins. „Ég held að það sé mik­il­vægt að bera meiri virðingu fyr­ir því að þarna und­ir eru störf og lifi­brauð fólks. Tím­inn virt­ist standa í stað á skrif­stof­un­um þeirra í Borg­ar­túni og það var mjög erfitt að fá svör eða nokkr­ar leiðbein­ing­ar. Tím­inn virðist samt ein­göngu af­stæður hjá Heil­brigðis­eft­ir­lit­inu, því hjá öll­um öðrum op­in­ber­um batte­rí­um tikkuðu drátt­ar­vext­ir á meðan Heil­brigðis­eft­ir­litið dundaði sér við að finna nýj­ar og nýj­ar ástæður fyr­ir því að ekki væri hægt að opna,“ seg­ir hún.

Búið að flækja ein­falda hluti

„Það virt­ist til að mynda koma mönn­um inn­an Heil­brigðis­eft­ir­lits­ins í opna skjöldu að við Hverf­is­götu 6 hefði verið rek­inn veit­ingastaður um ára­bil. Heil­brigðis­eft­ir­lit gegn­ir mik­il­vægu hlut­verki en það fjall­ar um um mat­væla­ör­yggi og holl­ustu­hætti, ekki skatta­mál þriðja aðila.“

Ólöf seg­ir að yf­ir­stofn­an­ir Heil­brigðis­eft­ir­lits­ins, borg­in, stjórn­mála­menn þvert á flokka, emb­ætt­is­menn, ráðuneytið, sýslumaður og all­ir þeir sem komi að leyf­is­veit­ing­um á svona starf­semi hafi lagt sig fram til að hægt væri að opna þenn­an full­búna veit­ingastað hvar fjöldi fólks hef­ur at­vinnu sína. „Auðvitað má spyrja sig hvers vegna þarf aðkomu svona margra aðila að opn­un eins veit­ingastaðar. En það er vegna viðhorfs­ins sem rík­ir gagn­vart veit­inga­húsa­rekstri inn­an Heil­brigðis­eft­ir­lits­ins sem Kast­rup hef­ur staðið auður á fjöl­förn­um stað í borg­inni með mikl­um til­kostnaði allra hlutaðeig­andi og hryggi­legri götu­mynd.

Ólöf Skaftadóttir hefur verið að aðstoðað nýja rekstraraðila veitingastaðarins við …
Ólöf Skafta­dótt­ir hef­ur verið að aðstoðað nýja rekstr­araðila veit­ingastaðar­ins við að opna Kast­rup að nýju. Ljós­mynd/​Aðsend

Ég hef mikla sam­kennd með fólki sem legg­ur allt und­ir til þess að gæða borg­ina lífi, búa til störf og skatt­tekj­ur, en lend­ir í þessu frum­skóg­ar­reglu­verki og emb­ætt­is­mönn­um sem finna ekki hjá sér þörf til að leiðbeina borg­ur­un­um í gegn­um þetta völ­und­ar­hús reglna og laga. Við höf­um heyrt fjöl­mörg dæmi þessa í fjöl­miðlum und­an­farna daga og mér finnst flott hjá Jó­hanni Páli Jó­hanns­syni, ráðherra mála­flokks­ins, að gefa sér tíma í að rýna þetta reglu­verk og ein­setja sér að ein­falda það. Það er búið að flækja ein­falda hluti með slík­um hætti und­an­far­in ár að það þarf ein­hvern full­orðinn til að grípa inn í og tengja í jörð svo að ein­hver rekst­ur þríf­ist í þess­ari borg. Það má ekki verða svo að skap­andi og fram­taks­samt fólk týn­ist hrein­lega inni á ein­hverj­um skrif­stof­um í Borg­ar­túni og svo bara spyrj­ist ekk­ert til þess meir. Von­andi verður Jó­hann Páll sá sem þessu breyt­ir.“

Fleiri eru í sömu spor­um

Allt er gott sem end­ar vel seg­ir Ólöf því nú hef­ur veit­ingastaður­inn fengið leyfi og var opnaður á fimmtu­dags­kvöld. Þar verður sami gamli mat­seðill­inn og sama starfs­fólk og verið hef­ur, en 101 hót­el tek­ur við rekstri veit­ingastaðar­ins ásamt starfs­fólki veit­ingastaðar­ins sem fastak­únn­ar þekkja.

„Ég vil senda ljós á alla þá veit­inga­menn sem eru í sömu spor­um og ég hef lesið frá­sagn­ir af und­an­farna daga. Ég tek glöð við sím­töl­um ef menn þurfa aðeins að blása eft­ir sam­skipti sín við þetta stjórn­vald. Þau geta gert hvern sem er grá­hærðan.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert