Það er komið sumar samkvæmt dagatalinu og grilltímabilið því hafið og í fullum gangi. Undanfarið hefur orðið mikill áhugi á svonefndri straujárnssteik eða „Flat iron steak“ eins og hún er kölluð á enskri tungu.
Þessi partur nautsins hefur verið að ryðja sér til rúms hérlendis þessi dægrin en hefur sífellt orðið vinsælli erlendis. Það skyldi því engan undra þegar viðskiptavinurinn spurði kjötkaupmanninn „Hvað í skrambanum er straujárnssteik?“ Nafnið „flat iron“ kemur til vegna þess að lögunin á steikinni er flöt eða sporöskjulaga og líkist eiginlega straujárnshaus.
Flat iron bygginingin í New York er flöt eða sporöskjulaga og líkist eiginlega straujárnshaus líkt og þessi steik.
Ljósmynd/Unsplash
Straujárnssteikin er tekin eða skorin úr öxl (chuck) nautgripsins. Það sem einkennir þennan part er að þessi partur nautgripsins er mjög meyr, hefur mikið bragð, safaríka áferð, vel fitusprengdur og er jafnframt á betra verði en t.d. vinsælar steikur, t.a.m. eins og ribeye eða nautalund, en samt afbragðs kjöt engu að síður. Flat iron steikin er ein af meyrustu steikunum ef hún er rétt elduð og kemst einna næst nautalund (fillet mignon).
Eldunaraðferð og grillráð
- Taktu steikina úr kæli og leyfðu henni að ná stofuhita í 30 – 60 mínútur.
- Hitaðu grillið á miðlungs háum hita, kolagrill er mikill kostur, gefur það kolagrillsbragð.
- Kryddaðu steikina með salti og pipar eftir smekk.
- Flat iron steik er líka hentug til marineringar. Einfaldar kryddblöndur með ólífuolíu, hvítlauk og ferskum jurtum eru t.d. mjög góðar.
- Ef þú kýst að marinera steikina þá getur þú marinerað steikina í 30–60 mínútur fyrir eldun eftir smekk.
- Kjötið er engu að síður með ljúffengu bragði sem hægt er að njóta vissulega án aukakrydds nema kannski smá salti og pipar og er jafnframt safaríkt þannig.
- Grillið steikina í 3 – 4 mínútur á hvorri hlið fyrir miðlungs steikingu. Notið kjöthitamæli til að tryggja rétta eldun en það má líka láta tilfinningu ráða för.
- Miðið við kjarnhita 54 – 57 °C fyrir miðlungs steikingu (medium rare). Látið steikina hvíla í 5 – 10 mínútur áður en hún er skorin í þunnar sneiðar. Þetta hjálpar til við að halda safanum í kjötinu og tryggir meyrara kjöt.
- Alls ekki ofelda steikina. Ef straujárnssteik er ofelduð, meðalsteikt 60 – 65°C (medium) eða gegnsteikt 65 – 68°C (well done) þá getur áferðin á steikinni orðið frekar óspennandi og alls ekki sú sama og medium rare eða miðlungs steikt.
Meðlæti að eigin vali
Meðlæti með „Flat iron“ steik getur verið af ýmsum toga, grillað grænmeti, kartöflur, ferskt salat, sósur eins og chimichurri svo fátt sé nefnt.