Glænýr Toppur afrakstur samstarfs Emmessís og Nóa Siríus

Fyrirtækin Emmessís og Nói Siríus hafa nú þróað nýja vöru …
Fyrirtækin Emmessís og Nói Siríus hafa nú þróað nýja vöru saman sem er Siríus saltkaramellutoppur. Anna Fríða Gísladóttir og Kristján Geir Gunnarsson eru afar ánægð með útkomuna. Samsett mynd

Fyr­ir­tæk­in Em­mess­ís og Nói Siríus hafa enn á ný tekið hönd­um sam­an og þróað vöru sem er nú kom­in í versl­an­ir. Að þessu sinni er það Siríus salt­kara­mellutopp­ur og er óhætt að segja að viðbrögð neyt­enda hafa ekki staðið á sér að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu frá þeim.

Anna Fríða Gísla­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri markaðssviðs Nóa Siríus, seg­ir það mikið gleðiefni þegar tvö sterk fyr­ir­tæki vinna sam­an að því mark­miði að upp­fylla vænt­ing­ar neyt­enda og enn þá betra þegar mögu­lega tekst að fara fram úr vænt­ing­um þeirra.

„Það hef­ur svo lík­lega ekki komið að sök að veðrið und­an­farið hef­ur verið með besta móti en ég vil nú samt meina að þessi Topp­ur verði líka mikið keypt­ur og borðaður í súld og frosti, svo góður er hann“, seg­ir Anna Fríða.

Þriðja skiptið sem fyr­ir­tæk­in þróa sam­an vöru

Þetta er í þriðja skipti sem fyr­ir­tæk­in þróa vöru sam­an og seg­ir Kristján Geir Gunn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Em­mess­ís, einn kost­inn við sam­starfið að bæði leggi þau mikið upp úr mat­væla­vott­un­um og gæðaör­yggi.

„Við hjá Em­mes­ís erum með FSSC 2200 og ISO22000 mat­væla­ör­ygg­is­vott­an­ir og ég veit að hjá Nóa er einnig öll­um ströngustu stöðlum fylgt í hví­vetna“, seg­ir Kristján.

Nýi Topp­ur­inn er blanda af vanilluís og stökk­um Siríus-kara­mellu­kúl­um og kem­ur lík­lega til með að kæla marg­an mann­inn í sum­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert