Fullkominn forréttur til að deila

Miðsumarsrækjur í kremaðri sósu, með fersku dilli og ristuðu baguette …
Miðsumarsrækjur í kremaðri sósu, með fersku dilli og ristuðu baguette sem steinliggur í næsta boði. Samsett mynd

Þess­ar miðsum­ars­rækj­ur í kremaðri sósu, með fersku dilli og ristuðu bagu­ette eða brauðsneiðum, eru full­komn­ar til að bjóða upp á í for­rétt og líka flott­ur rétt­ur til að deila.

Það sem ger­ir þenn­an rétt svo góðan er ferska dillið sem ég fæ frá Vaxa. Bragðið og fersk­leik­inn ger­ir allt betra, fátt er betra en sjáv­ar­fang og ferskt dill. Ég býð gjarn­an upp sjáv­ar­fang í for­rétt þegar góða gesti ber að garði og þegar ég vil gera sér­stakt­lega vel við mig og mína. Svo er líka ljúf­fengt að bera þenn­an rétt með ný­bökuðu súr­deigs-bagu­ette en það hef ég fengið í Bern­höfts­baka­ríi.

Þetta súrdeigs-baguetta steinliggur með þessum rétti.
Þetta súr­deigs-bagu­etta stein­ligg­ur með þess­um rétti. mbl.is/​Sjöfn

Best er að gera sós­una fyrst og kæla síðan á meðan rækj­urn­ar eru eldaðar.

Miðsumarsrækjur í kremaðri sósu, með fersku dilli og ristuðu baguette.
Miðsum­ars­rækj­ur í kremaðri sósu, með fersku dilli og ristuðu bagu­ette. mbl.is/​Sjöfn

Fullkominn forréttur til að deila

Vista Prenta

Miðsum­ars­rækj­ur í kremaðri sósu með fersku dilli og ristuðu brauði

Rækj­ur

  • 400 g soðnar rækj­ur
  • 1 msk. ólífu­olía eða smjör
  • Salt og svart­ur pip­ar eft­ir smekk
  • 1 hvít­lauks­geiri, smátt saxaður eða mar­inn

Aðferð:

  1. Hitið olíu eða smjör á pönnu við meðal­hita.
  2. Bætið við rækj­um og hvít­lauk, saltið og piprið eft­ir smekk.
  3. Steikið í 2–3 mín­út­ur eða þar til rækj­urn­ar eru orðnar heit­ar og létt gyllt­ar, alls ekki of­steikja þær.

Kremuð dillsósa

  • 1/​2 dl sýrður rjómi eða jóg­úrt
  • 2 msk. maj­ónes
  • 1 msk. sítr­ónusafi
  • 1 tsk. rif­inn sítr­ónu­börk­ur
  • 2 msk. ferskt dill frá Vaxa, smátt saxað
  • Salt og svart­ur pip­ar eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Blandið sam­an í skál, sýrðum rjóma eða jóg­úrt, maj­ónesi, sítr­ónusafa og sítr­ónu­börk, söxuðu dilli, salti og pip­ar eft­ir smekk.
  2. Kælið í ís­skáp á meðan rækj­urn­ar eru eldaðar.

Meðlæti og til skrauts:

  • Sítr­ónusneiðar
  • Ferskt dill frá Vaxa
  • Súr­deigs-bagu­ette eða ristað brauð að eig­in vali

Sam­setn­ing:

  1. Smyrjið ristaðar bagu­etta-sneiðar eða venju­leg­ar fransk­brauðsneiðar með smjöri eft­ir smekk.
  2. Ristið á pönnu eða í ofni þar til sneiðarn­ar eru gull­in­brún­ar og stökk­ar.
  3. Skerðu í smærri bita ef þið eruð með heil­ar stór­ar brauðsneiðar, þarf ekki ef þið eruð með bagu­ette.
  4. Smyrjið kremuðu sós­unni á fat eða fal­leg­an disk.
  5. Leggið rækj­urn­ar ofan á og skreytið með sítr­ónusneiðum og fersku dilli.
  6. Raðaðu ristuðu bagu­ettasneiðunum eða litlu brauðsneiðunum í kring eða setjið í skál til hliðar.
  7. Berið fram og njótið með ykk­ar bestu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert