Dásamlega ljúffengt piparkökubrauð

Ljósmynd/Linda Ben

„Hér höf­um við al­veg dá­sam­lega mjúkt og ljúf­fengt pip­ar­köku­brauð sem er án eggja og mjólk­ur, það er einnig veg­an,“ seg­ir Linda Ben um þetta dýr­ind­is pip­ar­köku­brauð sem hring­ir inn jól­in.

„Það er afar ein­falt að út­búa það en maður byrj­ar á því að blanda sam­an þur­refn­un­um og bæt­ir svo blautu hrá­efn­un­um út í. Bak­ar svo brauðið í 30 mín og berð það svo fram með mjúku smjöri og osti þegar það hef­ur kólnað svo­lítið.“

Dásamlega ljúffengt piparkökubrauð

Vista Prenta

Pip­ar­köku­brauð (v)

  • 200 g hveiti
  • 2 tsk. kanill
  • 2 tsk. engi­fer
  • 1/​4 tsk. neg­ull
  • 1/​2 tsk. mat­ar­sódi
  • 1/​2 tsk. lyfti­duft
  • 100 g kó­kosol­ía
  • 1 dl Veru hafrajóg­úrt með kara­mellu og per­um
  • 1 dl hlyns­íróp

Aðferð:

  1. Kveikið á ofn­in­um og stillið á 180°C, und­ir- og yf­ir­hita.
  2. Setjið hveiti, kanil, engi­fer, neg­ul, mat­ar­sóda og lyfti­duft í skál, hrærið sam­an.
  3. Bræðið kó­kosol­í­una og hellið henni út í skál­ina ásamt hlyns­íróp­inu, blandið vel sam­an við.
  4. Takið brauðform og setjið smjörpapp­ír í formið. Þið getið líka smurt það en mér finnst þetta fljót­legra og þægi­legra. Hellið deig­inu í smjörpapp­ír­klædda formið og sléttið úr deig­inu. Bakið í u.þ.b. 25 mín eða þar til brauðið er bakað í gegn.
Ljós­mynd/​Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert