Þetta eru jólaeftirréttirnir í ár

Ljósmynd/Sweet Aurora

Baka­ríið Sweet Aur­ora í miðborg Reykja­vík­ur (Bergstaðastræti 14) er mögu­lega best geymda leynd­ar­mál borg­ar­inn­ar. Þar er að finna kök­ur sem eru svo guðdóm­leg­ar að fólk hef­ur sést fara grát­andi út - eða svo gott sem.

Baka­ríið er hug­ar­fóst­ur hinn­ar frönsku Aur­ore Pelier Cady sem meðal ann­ars safnaði fé til að láta draum­inn sinn ræt­ast á Karol­ina Fund.

Nú hef­ur draum­ur­inn orðið að veru­leika og þeir sem hafa smakkað dá­semd­irn­ar sem þar eru bakaðar segj­ast sjald­an hafa smakkað annað eins. Einnig býður Aur­ore upp á nám­skeið í köku­gerð - bæði fyr­ir ein­stak­linga og hópa.

Við rák­um aug­un í jóla­eft­ir­rétta­kök­urn­ar og get­um eig­in­lega ekki ákveðið hvað okk­ur lang­ar mest í. Reikna má með að best sé að panta kök­urn­ar fyr­ir­fram en ef þið viljið slá í gegn við mat­ar­borðið um jól­in þá mæl­um við með kök­um frá Sweet Aur­ora.

Heimasíðu Sweet Aur­ora er hægt að nálg­ast HÉR.

Ljós­mynd/​Sweet Aur­ora
Ljós­mynd/​Sweet Aur­ora
Ljós­mynd/​Sweet Aur­ora
Ljós­mynd/​Sweet Aur­ora
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert