Það eru sífellt fleiri sem vilja breyta til á jólunum og andabringur eru einstaklega góður kostur. Ekki er verra hversu einfalt er að útbúa þær.
- Andabringur
- Salt
- Pipar
- 1 appelsína
Aðferð:
- Hreinsið burt sinina undir bringunni og skerið rendur í fituna en passið vel að fara ekki í kjötið.
- Kryddið til með salti og pipar.
- Bringurnar eru lagðar með fituhlið niður á kalda pönnu. Kveikið á hellunni á miðlungshita. Það er gert svo að fitan bráðni rólega og stökk húð myndist.
- Þegar fitan er orðin stökk er bringunni snúið við og brúnað undir.
- Setjið bringurnar í 180 gráðu heitan ofn í átta mínútur og leyfið að hvíla í fimm mínútur áður en þær eru skornar niður.
- Skrælið appelsínu, skerið í báta, hreinsið himnuna frá og skreytið réttinn.
Andabringur eru ljúffengar á hátíðarborðið og einfalt er að útbúa þær.
mbl.is/Kristinn Magnússon