Einar Hjaltason á VON mathúsi við höfnina í Hafnarfirði er þekktur fyrir fagleg vinnubrögð og ferskleika í matargerð. VON mathús er lítið fjölskyldurekið fyrirtæki sem leggur áherslu á árstíðabundna íslenska matargerð og hráefnanotkun hverju sinni.
Einar er reyndur matreiðslumaður sem starfaði meðal annars á Michelin-staðnum Dabbous í London.
Hreindýrainnralæri
- 800 g – 1 kg hreindýrainnralæri
- 100 g smjör
- 1 stk hvítlauksgeiri
- timían eða rósmarín
Einfaldleikinn er besta leiðin þegar eldað er hreindýr að mínu mati. Einstakt bragð og áferð kjötsins þarf að vera í forgrunni.
Jólamatur - Einar - Von mathús
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Aðferð:
- Kjötið er steikt í heilu lagi á vel heitri pönnu í smástund svo það brúnist. Svo má snúa því og bæta við vænni klípu af smjöri, hvítlauk og rósmaríni eða timían.
- Tekið af og hvílt, þá má skoða hvort það þurfi að setja inn í ofn í smástund eða ekki.
- Ég mæli með 50-55 gráða hita í kjarnhita.
- Síðan er bara að skera og njóta.
Brúnkál
- ½ haus hvítkál
- 200 g sykur
- 2 msk eplaedik
- 2 tsk kúmen
- klípa salt
Aðferð:
- Kálið er skorið fínt í strimla.
- Í potti er sykurinn bræddur alveg eins og þegar á að gera sykurbrúnaðar kartöflur.
- Þegar sykurinn er gullinbrúnn er kálinu bætt út í og hrært varlega.
- Bætið ediki og kúmeni út í og eldið í kringum tíu mínútur og smakkið til með salti.
Jólamatur - Einar - Von mathús
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Rófur
- 1 kg rófur
- 2 stk hvítlauksgeirar
- 2 greinar timían
- olía
- salt og pipar
Aðferð:
- Skrælið rófur og skerið í báta eða hentuga stærð.
- Veltið upp úr olíu, hvítlauk, salti og pipar.
- Setjið í fat eða ofnskúffu og bakið við 190 gráða hita í 20 mínútur eða þar til klárt.
Sveppasósa
- 500 ml nautasoð
- 1 askja kjörsveppir
- ½ laukur
- 2 stk hvítlauksgeirar
- 100 ml rjómi
- 50 ml rauðvín
- 2 greinar timían
- salt og pipar
Aðferð:
- Laukur og hvítlaukur, fínt saxað og svitað í potti,
- Sveppir sneiddir fínt og bætt út í pottinn ásamt timían og smá salti.
- Látið malla í tvær mínútur og bætið svo víni við og eldið þar til vínandi er farinn úr.
- Næst er nautasoði bætt við (eða einfaldlega smá vatn og uppáhalds teningur ef ekki er til
- nautasoð) og soðið niður þar til vökvinn þykknar aðeins.
- Bætið við rjóma og sjóðið aðeins meira.
- Smakkað til með salti og pipar, einnig er gott að setja smá sherrý eða koníak.
Epli
Aðferð:
- Epli skrælt og skorið eftir smekk, og notað til skreytinga.
- Eplið gefur sýru og ferskleika með steikinni, best er að gera þetta bara rétt áður en matur er framreiddur.
Jólamatur - Einar - Von mathús
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon