Timían-smjörsteiktar perur
- 4 stk. perur
- 150 g smjör
- 25 g timían
- 2 g salt
Aðferð:
- Skrælið perurnar og skerið í fjóra bita.
- Bræðið smjör á pönnu og bætið timían á pönnuna.
- Perurnar eru steiktar í smjöri við miðlungshita þar til þær eru mjúkar í gegn.
- Gott er að ausa smjöri yfir perurnar allan tímann.
- Þetta er skreytt með rauðum skógarsúrum.
Smjörsteiktar perur eru ómissandi meðlæti með hátíðarsteikinni.
mbl.is/Kristinn Magnússon