Hátíðarandalæri með graskeri og rifsberjagljáa
- andalæri í dós
- salt og pipar
Aðferð:
- Dósin er látin standa við stofuhita í nokkrar klukkustundir áður en hún er opnuð. Það er gert til þess að fitan bráðni og betra sé að taka lærin upp úr fitunni.
- Opnið dósina og geymið fituna fyrir graskerið.
- Raðið á ofnskúffu og eldið á 180 gráðum í 20 mínútur. Gott er að hækka hita síðustu fimm mínúturnar til að fá stökka húð.
Bakað grasker með andafitu
- 1 stk. butternut squash
- 2 msk. andafita
- 1 msk. hlynsíróp
- salt
- pipar
- 2 greinar rósmarín
Aðferð:
- Skrælið graskerið, skerið í 2x2 cm teninga og raðið í eldfast mót.
- Blandið öllu saman í mótið og kryddið til með salti og pipar.
- Bakið á 180 gráðum í 20 mínútur eða þar til graskerið er eldað í gegn og byrjað að karamellíserast.
Rifsberjagljái
- 750 ml kjúklingasoð
- 750 ml rifsberjasafi
- 100 ml rauðvín
- salt
- 1 tsk. eplaedik
- 100 g smjör
- 2 stk. timíangreinar
Aðferð:
- Setjið rifsberjasafa og rauðvín í pott og sjóðið niður þar til þriðjungur er eftir í pottinum.
- Bætið þá kjúklingasoði út í og sjóðið niður um helming.
- Bætið við timíangrein og eplaediki og leyfið sósunni að malla í eina mínútu.
- Sigtið þá sósuna og bætið við smjöri.
- Gott er að setja fersk rifsber í sósuna.
Þessa uppskrift, sem og aðrar, má finna í blaðinu Hátíðarmat frá Hagkaup sem er hér.