Gunnlaugur Arnar Ingason bakari, eða Gulli Arnar eins og flestir þekkja hann, kom eins og ferskur blær inn á eftirrétta- og kökugerðarmarkaðinn en hann lærði í Kaupmannahöfn.
Í bakaríinu hans sem er staðsett í Hafnarfirði er haldið fast í þau gildi að framleiða hágæðavöru frá grunni.
Hér deilir Gulli Arnar með okkur uppskrift að ljúffengum konfektsörum.
Danskir makkarónubotnar
- 700 g sykur
- 500 g kransamassi
- 30 g hveiti
- 190 g eggjahvítur
Aðferð:
- Vinnið saman sykur, hveiti og kransamassa samfellt.
- Blandið eggjahvítum rólega út í þar til blandan er komin saman.
- Sprautið botnunum í þá stærð sem þið óskið.
- Bakið við 180 gráður í um átta mínútur (fer eftir stærð).
Krem
- 150 g síróp
- 120 g gerilsneyddar eggjarauður
- 300 g mjúkt smjör
- 10 g sterkt kaffi (kalt)
- 15 g kakó
Aðferð:
- Þeytið eggjarauður.
- Hitið sírópið örlítið og hellið í mjórri bunu í þeyttu eggjarauðurnar.
- Bætið smjöri saman við og þeytið.
- Setjið kaffi saman við meðan þeytt er í mjórri bunu.
- Blandið kakói saman við í lokin.
- Sprautið kremi á sörurnar og kælið/frystið.
- Dýfið sörunum í brætt dökkt súkkulaði og geymið í frysti.
Þessa uppskrift, sem og aðrar, má finna í blaðinu Hátíðarmat frá Hagkaup sem er hér.
Bakaríð hans Gulla Arnars hefur verið mjög vinsælt síðan það opnaði fyrir fjórum árum.
mbl.is/Kristinn Magnússon