Gunnlaugur Arnar Ingason, Gulli Arnar, rekur bakarí í Hafnarfirði en hann lærði eftirrétta- og kökugerð í Kaupmannahöfn.
„Eftirréttirnir okkar hafa skapað sér fastan sess í bakaríinu og það seljast hundruð eftirrétta á viku,“ segir Gulli Arnar og lætur hér fylgja með uppskrift að dýrlegri sítrónuböku.
Bökubotn
- 200 g sykur
- 400 g smjör
- 30 g eggjarauður
- 50 g egg
- 600 g hveiti
Aðferð:
- Blandið saman sykri og smjöri og bætið eggjum við.
- Setjið hveiti saman við og hnoðið saman.
- Gott er að kæla deigið áður en það er flatt út í tartform.
- Bakið við 180 gráður í 10-12 mínútur eða þar til það er gullinbrúnt.
Lemon curd
- 4 g matarlím
- 300 g gerilsneyddar eggjarauður
- 210 g sítrónusafi
- 240 g sykur
- 60 g smjör
Aðferð:
- Leggið matarlím í bleyti.
- Hrærið saman eggjarauður og sykur.
- Hitið sítrónusafa upp og hellið í mjórri bunu yfir eggjablönduna meðan hrært er.
- Setjið blönduna aftur í pottinn og hitið við mjög vægan hita meðan hrært er upp í um 85 gráður.
- Hrærið matarlím út í kremið.
- Hellið sítrónukreminu í bökuskelina og kælið, ef til vill yfir nótt.
Ítalskur marens
- 100 g vatn
- 400 g sykur
- 200 g eggjahvítur
Aðferð:
- Þeytið eggjahvítur.
- Sjóðið sykur og vatn saman í síróp við um það bil 120 gráður.
- Hellið sírópinu í mjórri bunu út í eggjahvíturnar meðan þeytt er.
- Stífþeytið og smyrjið marensinum yfir kremið og brennið með gasbrennara.
Þessa uppskrift, sem og aðrar, má finna í blaðinu Hátíðarmat frá Hagkaup sem er hér.
Gulli arnar bakari. Merking: Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon