Flestir vita að rauðrófur eru frábærar fyrir líkamann en þær eru ekki síðri á veisluborðið, sérstaklega þegar búið er að setja alls konar góðgæti á borð með þeim.
Karamellíseraðar rauðrófur
- 3 stk. rauðrófur
- 150 g rauðrófusafi
- 60 g púðursykur
- 50 g púrtvín
- 3 anísstjörnur
- 40 g heslihnetur
- geitaostur til að rífa yfir
Aðferð:
- Bakið rauðrófurnar í heilu lagi við 200 gráðu hita í eina klukkustund.
- Ristið heslihnetur í ofninum á sama tíma við 200 gráður í fimm mínútur.
- Setjið rauðrófusafa, púðursykur, púrtvín og anís í pott og hitið til að leysa upp sykurinn.
- Skerið rauðrófurnar í 2x2 cm bita og bætið út í pottinn.
- Sjóðið þangað til að rauðrófurnar eru orðnar karmellíseraðar.
- Blandið öllu saman í skál.
Þessa uppskrift, sem og aðrar, má finna í blaðinu Hátíðarmat frá Hagkaup sem er hér.