Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, er með einstakt auga fyrir útliti og fegurð. Hún hefur aðstoðað landsmenn í að búa til fallegar kökur fyrir jólin og lætur ekki sitt eftir liggja þetta árið. Hún mælir með því að við búum til litlar fallegar pavlovur, að við gerum virkilega vel við bragðlaukana okkar núna með súkkulaði, í bland við marens og rjóma. Glæsilegt veisluborð með girnilegum eftirréttum verður í öndvegi þessi jólin!
Litlar pavlovur fylltar með sítrónufyllingu og rjóma
- 6 stk. eggjahvítur
- 300 g sykur
- 1 ½ tsk. mataredik
- 1 tsk. vanilludropar
- Salt á hnífsoddi
- 1 krukka (326 g) frá Stonewall Kitchen eða önnur tegund að ykkar vali
- 400 ml rjómi
- Fersk ber að eigin vali
- Flórsykur, magn eftir smekk
Aðferð:
- Forhitið ofninn í 100°C.
- Þeytið eggjahvítur með salti, bætið sykri saman við í þremur skömmtum og þeytið vel á milli.
- Bætið ediki og vanilludropum saman við þegar marensinn er orðinn stífur.
- Setjið marensinn í sprautupoka eða notið skeiðar til þess að móta lítil hreiður.
- Bakið marensinn við 100°C í 90 mín.
- Slökkvið á ofninum, opnið hurðina og látið marensinn kólna í ofninum eða yfir nótt eins og ég geri gjarnan.
- Setjið góða skeið af sítrónubúðingi yfir hverja köku og síðan er rjóminn settur yfir.
- Skreytið að vild með ferskum berjum og stráið flórsykri yfir rétt áður en þið berið kökurnar fram.
Lindor-súkkulaðimús með saltaðri karamellu
Fyrir 6-8
- 200 Lindor-súkkulaðikúlur með saltaðri karamellu og 3 msk. rjómi
- 100 g suðusúkkulaði
- 550 ml rjómi
- 1 tsk. vanilludropar
- 200 g súkkulaðibitakökur muldar
- Söltuð karamellusósa, magn eftir smekk
Aðferð:
- Bræðið súkkulaðið í rjómanum.
- Stífþeytið rjómann.
- Hellið súkkulaði út í rjómann og hrærið vel saman ásamt vanilludropum.
- Myljið súkkulaðibitakökur og setjið í form á glasi eða skál, því næst er músinni sprautað yfir og það er gott að kæla hana aðeins áður en þið sprautið, en þannig er hún stífari.
- Setjið saltaða karamellusósu yfir í lokin og jafnvel skreytið með ferskum berjum.
- Kælið vel áður en þið berið hana fram.
Risa-þristakaka með vanilluís og súkkulaðisósu
- 1 þristadeig frá Evu Laufeyju Vanilluís, magn eftir smekk
- 100 g suðusúkkulaði, brætt
- 80 g þristasúkkulaði, smátt skorið
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180 gráður, blástur.
- Setjið bökunarpappír í hringlaga form og þjappið deiginu í formið svo það móti eitt stórt deig.
- Bakið við 180 gráður í 16-18 mínútur.
- Berið strax fram með vanilluís, bræddu súkkulaði og smátt söxuðum þristabitum.
Þessa uppskrift, sem og aðrar, má finna í blaðinu Hátíðarmat frá Hagkaup.