Helga Margrét Gunnarsdóttir næringarþjálfari er einstaklega góð í að gera ljúffengar og hollar mataruppskriftir. „Við fjölskyldan erum alltaf með kalkún á jólunum og yfirleitt er það smjörsprautaða kalkúnaskipið frá Hagkaup sem verður fyrir valinu,“ segir Helga Margrét Gunnarsdóttir og bætir við að rjóma/skyrísinn með þristakökudeiginu sé svo punkturinn yfir i-ið á jólunum. Holl og skemmtileg uppskrift sem er ekki flókið að gera.
Helga Magga hvetur alla til að prófa sig áfram með skýrís með þristakökudeigi um hátíðirnar.
mbl.is/Eyþór
Rjóma/skyrís með þristakökudeigi
- 250 ml rjómi
- 250 g vanilluskyr
- 4 egg
- 50 g sykur
- Hálft tilbúið þristakökudeig frá Evu Laufeyju eða eftir smekk, má vera meira.
Aðferð:
- Byrjið á því að aðskilja eggjahvítuna og -rauðuna, stífþeytið svo rauðuna með sykrinum.
- Í annarri skál stífþeytið þið eggjahvíturnar.
- Í þeirri þriðju þeytið þið rjómann og svo er gott að þeyta skyrið örlítið til að fá loft í það.
- Blandið öllu vel saman, fyrst rjómanum við eggjarauðurnar og svo eggjahvítunum saman við ásamt skyrinu. Skerið kökudeigið í bita og blandið út í skálina.
- Færið ísblönduna í form sem passar í frystinn ykkar.
- Gott er að setja filmu yfir formið eða hafa í íláti með loki.
- Frystið í sex klukkustundir hið minnsta.
Þessa uppskrift, sem og aðrar, má finna í blaðinu Hátíðarmat frá Hagkaup.