Margir heimsækja veitingastaðinn Garðinn yfir hátíðirnar þar sem lífrænn matur er borinn fram í fallegu umhverfi. Allt starfsfólk Garðsins hefur lært að hugleiða hjá hugleiðslukennaranum Sri Chinmoy og leitast það við að skapa friðsælt andrúmsloft til að borða í. Að rækta garðinn heima og að njóta á jólunum er í anda Guðnýjar sem kann að búa til veislu úr fallegum og góðum vegan mat. Hér deilir Guðný Jónsdóttir, einn af eigendum staðarins, með lesendum ljúffengum uppskriftum fyrir grænkera á jólunum.
Dásamlegt veisluborð þar sem borðbúnaður gerður af leirlistakonunni Margréti Jónsdóttur fær að njóta sín. Dúkurinn er úr Kokku og jólakertið kaupir Guðný árlega í Magnolia.
mbl.is/Eyþór
Kúrbíts- og heslihnetusteik er vinsæll veislumatur á jólunum.
mbl.is/Eyþór
Kúrbíts- og heslihnetusteik
- 1 meðalstór laukur, fínt skorinn
- 3-4 msk. olía
- 100 g hakkaðar heslihnetur
- 550 g kúrbítur í litlum bitum
- ½ msk. sesamfræ
- ½ msk. kummínfræ (broddkúmen)
- ½ tsk. túrmerik
- 1 tsk. rifin engiferrót
- 75 g meðalgróft haframjöl eða tröllahafrar
- 75 g meðalgróft möndlumjöl
- ¼ bolli kókosrjómi
- ⅛-¼ tsk. cayenne-pipar
- salt
- pipar
- 150 g niðursoðnir tómatar, maukaðir
Aðferð:
- Hitið 2 msk. af olíu á stórri pönnu og steikið laukinn við meðalhita í 3-4 mínútur.
- Bætið heslihnetunum og kúrbítnum við og steikið áfram í um 10 mínútur eða þar til hneturnar hafa tekið lit og kúrbíturinn hefur mýkst. Það gæti þurft að bæta aðeins við olíu á pönnuna því að hneturnar sjúga í sig olíu.
- Hitið ofninn í 180°C.
- Hitið 2 tsk. af olíu á lítilli pönnu.
- Blandið sesamfræjum, kummínfræjum, túrmeriki og engiferrót saman og steikið á meðalhita í 2-3 mínútur eða þar til tekur lit.
- Setjið heslihneturnar og kúrbítinn ásamt kryddinu, haframjölinu, möndlumjölinu, kókosrjómanum og cayenne-piparnum í stóra skál og blandið vel saman.
- Bætið við 1-1½ tsk. af salti og ½ tsk. pipar og hrærið hökkuðu tómötunum saman við.
- Smyrjið brauðform og þrýstið blöndunni ofan í.
- Bakið í 35-40 mínútur eða þar til steikin hefur brúnast.
- Mjög gott að nota silíkonform því að þá er auðvelt að hvolfa steikinni á fat.
Vegansmjör og kókosrjómi eru undirstaðan í sveppasósu grænkera á jólum.
mbl.is/Eyþór
Sveppasósa
- 2 msk. vegansmjör
- 200 g sveppir, skornir
- 150 ml vatn + jurtakraftur
- 250 ml kókosrjómi
- 1 msk. tamari-sojasósa
- nýmalaður svartur pipar
Aðferð:
- Steikið sveppina í smjörinu og malið vel af pipar yfir.
- Bætið rjómanum og soðinu saman við og látið malla þar til þykknar.
- Bætið sojasósunni út í.
Rauðrófusalat
- 300 g rauðrófur
- 200 g gulrætur
- 100 g hvítkál
- olía
- sítrónusafi
- salt
- pipar
Aðferð:
- Rífið rauðrófur og gulrætur í matvinnsluvél.
- Skerið hvítkálið mjög þunnt og blandið saman í skál.
- Blandið saman við þetta olíu, sítrónusafa, salti og pipar.
Kartöflubátar
- 500 g kartöflur
- ½ tsk. salt
- olía
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C.
- Skrúbbið kartöflur en hafið
- hýðið á.
- Skerið í tvennt eða fernt eftir stærð og blandið olíunni saman við.
- Bakið í 15 mínútur og saltið.
Glæsilegt veisluborð þar sem maturinn býr til fegurðina á jólum. Dúkurinn er úr Kokku og einnig hnífapörin sem eru í antíkstíl. Borðbúnaðinn gerði leirlistakonan Margrét Jónsdóttir. Öll hréfnin í matinn fást í Hagkaup.
mbl.is/Eyþór
Þessa uppskrift, sem og aðrar, má finna í blaðinu Hátíðarmat frá Hagkaup.