Eftirréttameistarinn Ólöf Ólafsdóttir mælir með því að við prófum okkur áfram með liti og form þessi jólin. Þó að Ólöf sé þekkt fyrir að gera flottustu eftirrétti landsins þá hefur hún þá hæfileika að einfalda uppskriftir og gera þær þannig að allir geti á einfaldan hátt búið þá til heima.
Uppskrift af græna makkarónukransinum og rauðu hindberjarjómabollunum, sem finna má á veisluborði Ólafar má sjá hér.
Piparkökujólatré með apríkósumarmelaði, þeyttum rjóma og ostavanillukremi.
mbl.is/Eyþór
Piparkökujólatré
með apríkósumarmelaði, þeyttum rjóma og ostavanillukremi
- 2 stk. Kötlu-piparkökudeig
Aðferð:
- Rúllið piparkökudeiginu út og skerið út tvö jólatré með stensli.
- Bakið jólatrén í 170°C heitum ofni í 10-12 mínútur.
Þeyttur rjómaosta- og vanillu-ganache
- 12 g gelatín
- 1.140 g rjómi
- 4 vanillustangir
- 400 g hvítt súkkulaði
- 360 g rjómaostur
Aðferð:
- Leggið matarlím í bleyti.
- Hitið rjóma og vanillu í potti að suðu, bætið matarlíminu saman við og hellið yfir hvíta súkkulaðið.
- Blandið þessu saman með töfrasprota.
- Þegar súkkulaðið er bráðið er rjómaostinum blandað saman við.
- Kælið ganache-inn yfir nótt og þeytið hann síðan fyrir notkun. Passið að þeyta ekki of mikið til að koma í veg fyrir að ganachinn skilji sig.
Appelsínumarmelaði
- Setjið þeytta rjómaostakremið í sprautupoka og sprautið doppum á annað tréð. Best er að byrja á að gera útlínurnar og fylla svo inn í.
- Setjið appelsínumarmelaðið einnig í sprautupoka og sprautið því í miðjuna á kökunni, passið að það fari ekki út í kantana.
- Leggið hitt piparkökutréð ofan á rjómaostakremið og sprautið fallegum doppum ofan á það.
- Skreytið að vild! Ég skreytti mitt tré með piparkökum, mandarínubátum, rósmaríni og calamansi.
Hvítsúkkulaði- og kampavínstrufflur er hátíðlegur eftirréttur á jólunum.
mbl.is/Eyþór
Hvítsúkkulaði- og
kampavínstrufflur
- 340 g hvítt súkkulaði
- 120 g kampavín
- 5 g sítrónusafi
- 60 g rjómi
- 60 g mjúkt smjör
- 1 g salt
- fræ úr einni vanillustöng
- gullduft
- 500-600 g hvítt súkkulaði til að hjúpa með
Aðferð:
- Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði eða örbylgjuofni og setjið til hliðar.
- Sjóðið kampavínið í litlum potti þar til það hefur gufað upp um helming. Það eiga að vera sirka 60 g eftir í pottinum.
- Hitið rjóma og vanillu í potti að suðu og hellið yfir hvíta súkkulaðið, hrærið þessu saman með töfrasprota. Athugið að þetta verður mjög þykkt.
- Hellið kampavíninu smátt og smátt út í súkkulaðiblönduna ásamt sítrónusafanum og blandið saman með töfrasprota.
- Kælið súkkulaði- og kampavínsblönduna í 35-40°c áður en þið blandið smjörinu saman við með töfrasprotanum.
- Setjið trufflurnar í skál og setjið inn í kæli.
- Þegar blandan hefur stífnað rúllið þá út litlum boltum, setjið á plötu og geymið inni í kæli á meðan þið temprið súkkulaðið.
- Dýfið köldum trufflunum í súkkulaðið og rúllið þeim í höndunum til að fá þunna og jafna skel. Þetta gefur trufflunum einnig fallega áferð.
- Rúllið þeim upp úr gullduftinu og njótið!
Þessa uppskrift, sem og aðrar, má finna í blaðinu Hátíðarmat frá Hagkaup.