Sr. Sigurlín Ívarsdóttir starfaði sem prestur í ensku biskupakirkjunni um árabil. Hún starfar sjálfstætt við sálgæslu og leiðir meðal annars hin vinsælu námskeið A Woman’s Way through The Twelve Steps eftir Dr. Stephanie Covington. Hún hvetur alla sem geta til að njóta samverunnar með fjölskyldu og vinum á jólunum. Allt sem Sigurlín snertir verður að töfrum og ákvað hún að deila með lesendum hvaða köku hún mælir með á jólaborðið. Fyrir valinu varð pekanbaka með ljúffengum viskí-vanilluís sem hún ber vanalega á borð fyrir fjölskylduna sína á aðfangadag.
Sr. Sigurlín fékk leirlistakonuna Margréti Jónsdóttur til að útbúa kökudisk og blómavasa og varð þessi fallegi græni litur fyrir valinu.
mbl.is/Eyþór Árnason
Pekanbaka
Bökubotn
- 200 g hveiti
- 1 msk. flórsykur
- 1/2 tsk. salt
- 110 g ósalt smjör
- 30 g fínmalaðar möndlur
- 1 tsk. vanilluduft
- 1 tsk. sítrónusafi
- 1 egg
- ískalt vatn
- 23 cm bökuform
- bökunarbaunir
Aðferð:
- Setjið hveiti, flórsykur, salt, möndlur, vanillu og kalt smjör í teningum í matvinnsluvél og hrærið þangað til það er orðið sandkennd blanda.
- Hrærið eggið út í skál og hellið út í blönduna (skiljið smá af egginu eftir til að pensla bökubotninn með) ásamt sítrónusafanum.
- Hrærið saman uns blandan fer að loða saman.
- Bætið við 1-3 matskeiðum af köldu vatni þar til blandan verður að hæfilega mjúku deigi.
- Takið deigið úr matvinnsluvélinni og hnoðið í kúlu. Takið bökunarpappír og leggið deigið á hann og þrýstið deiginu út með höndunum. Leggið síðan bökunarpappír ofan á deigið og fletjið út með kökukefli þar til deigið passar í 23 cm form.
- Færið deigið í bökunarpappírnum í formið, lagið til og skerið kantana jafna.
- Setjið bökunarbaunir ofan á.
- Bakið við 170 gráður og blástur í 10 mín.
- Takið út og fjarlægið baunirnar og efri pappírinn.
- Penslið með afganginum af egginu út við jaðrana, pikkið botninn með gaffli og setjið aftur í ofninn í 10 mín. á 160 gráður blástur.
- Takið út og geymið.
Fylling
- 180 g sykur
- 250 ml síróp
- 1/2 tsk. salt
- 3 egg
- 60 g ósalt smjör
- 1 tsk. vanilluduft
- 150 g pekanhnetur auk 25-30 helminga af hnetum til skrauts.
Aðferð:
- Stillið ofninn á 170 gráður blástur.
- Takið til heila hnetuhelminga til að skreyta með.
- Saxið pekanhnetur í hæfilega stærð fyrir fyllinguna og dreifið þeim jafnt yfir bökubotninn.
- Setjið sykur, síróp og salt á stóra pönnu á miðlungshita þar til sykurinn er bráðnaður.
- Takið þá af hitanum og látið kólna aðeins.
- Hrærið eggin saman með pískara í skál.
- Hellið blöndunni af pönnunni saman við eggin og hrærið stöðugt í á meðan.
- Bætið smjöri og vanillu út í og hrærið þar til smjörið er bráðið.
- Hellið fyllingunni í bökubotninn og skreytið með hnetuhelmingunum.
- Bakið í 50-60 mínútur. Fylgist með hitanum svo kakan verði ekki of dökk.
Það er hátíð í bæ hjá Sigurlín á jólunum.
mbl.is/Eyþór Árnason
Viskí-vanilluís
- 0,5 l rjómi
- 60-70 g sykur
- 4 egg
- 1 eggjarauða
- 1 dl frosið Woodford Reserve-viskí
- 1 tsk. vanilluduft
Aðferð:
- Setjið formin sem á að nota í frystinn.
- Stífþeytið rjómann í kaldri skál og geymið í kæli.
- Þeytið saman í kaldri skál eggjarauðu, egg, vanillu og sykur í 20 mín.
- Blandið rjómanum í eggjablönduna og þeytið.
- Setjið frosið viskí út í og þeytið (viskí sett í frysti deginum áður).
- Blöndunni hellt í form.
- Gott er að nota möffinsform því þá er ísinn fljótari að frjósa og verður mýkri.
- Hægt er að sleppa viskíinu og gera vanilluís.
Þessa uppskrift, sem og aðrar, má finna í blaðinu Hátíðarmat frá Hagkaup.