Einn skemmtilegasti skóli landsins er án efa Kokteilaskólinn. Við fengum Ivan Svan Corvasce eiganda skólans til að töfra fram fjóra girnilega kokteila sem gaman er að gera á jólunum. Það þarf ekki að vera flókið að hoppa inn í heillandi heim kokteilgerðar eins og uppskriftirnar sýna. Ivan er einstaklega góður í því að útfæra flóknar uppskriftir á einfaldan hátt og svo má ekki gleyma öllu fallega skrautinu sem hann gerir og setur ofan á drykkina sem setja má ofan á alla drykki á jólunum.
Glæsilegir kokteilar sem eiga vel við á jólunum.
mbl.is/Eyþór
Grasshopper er með piparmyntulíkjör frá Joseph Carton.
mbl.is/Eyþór
Grasshopper
- 35 ml nýmjólk
- 35 ml piparmyntulíkjör frá Joseph Carton
- 35 ml cacao-líkjör frá Joseph Carton
- 1 tsk. Fernet Branca
- lítil klípa salt
- súkkulaðispænir
Glas Kokteilglas á fæti
Skraut Súkkulaðispænir
Aðferð:
- Setjið öll hráefnin í hristara og fyllið hann alveg upp að brún með klaka.
- Hristið hressilega í 10-15 sekúndur eða þar til hristarinn er orðinn vel kaldur.
- Að lokum er drykknum hellt í gegnum sigti í kokteilglas.
- Hann er svo skreyttur með súkkulaðispæni.
Piparköku Espresso Martini er með Tia Maria, vodka og piparkökusírópi.
mbl.is/Eyþór
Piparköku Espresso Martini
- 35 ml vodka
- 25 ml Tia Maria
- 15 ml piparkökusíróp*
- 35 ml espresso
Glas Kokteilglas á fæti
Skraut Piparkaka sem lögð er ofan á drykkinn
*Piparkökusíróp
- 300 g púðursykur
- 200 ml vatn
- 30 g engifer
- 1 tsk. negull
- 1 tsk. kanill
- 1 tsk. svartur pipar
- lítil klípa salt
Aðferð:
- Þurra kryddið kramið saman í morteli og sett í þurran pott á miðlungshita þar til það hitnar og gefur frá sér kryddilm.
- Bætið við vatninu ásamt púðursykri, salti og engiferi sem er búið að skera í litla bita.
- Allt þetta er soðið saman þar til púðursykurinn bráðnar, í um fimm mínútur.
- Þá er potturinn tekinn af hellunni, lok sett á hann og hann látinn hvíla í að minnsta kosti eina klukkustund.
- Svo er sírópið sigtað og þá er allt klárt!
- Setjið öll hráefnin í hristara og fyllið hann alveg upp að brún með klaka.
- Hristið hressilega í 10-15 sekúndur eða þar til hristarinn er orðinn vel kaldur.
- Að lokum er drykknum hellt í gegnum sigti í kokteilglas á háum fæti.
- Hann er svo skreyttur með piparköku.
Last Christmas er með þurrkaðri blóðappelsínu.
mbl.is/Eyþór
Last Christmas
- 25 ml Malfy Blood Orange
- 25 ml Adriatico Amaretto
- 25 ml greipsafi
- 15 ml sítrónusafi
- 15 ml sykursíróp (1,5:1 sykur:vatn)
- 15 ml aquafaba
- þurrkuð blóðappelsína
Glas Kokteilglas
Skraut Þurrkuð blóðappelsína
Aðferð:
- Setjið öll hráefnin í hristara og fyllið hann alveg upp að brún með klaka.
- Hristið hressilega í 10-15 sekúndur eða þar til hristarinn er orðinn vel kaldur.
- Að lokum er drykknum hellt í gegnum sigti ofan í kokteilglas.
- Skreyttur með þurrkaðri blóðappelsínu.
Það er stemning í því að fá sér óáfengan jólakokteil.
mbl.is/Eyþór
Óáfengur jólakokteill
- 50 ml Lyre's White Cane (óáfengt romm sem fæst á kokteilaskólinn.is)
- 35 ml perusíróp*
- 25 ml sítrónusafi
- 15 ml eggjahvíta
- Þurrkuð pera**
*Perusíróp
- 500 ml vatn
- 2 stk. perur skornar í kubba
- 500 g sykur
- 1 kanilstöng
- 1 tsk. heill negull
- 1 tsk heilar kardimommur
- 2 g salt
Aðferð:
- Kremjið negul, kanilstöng og kardimommur í morteli áður en kryddið er sett í pott á miðlungsháum hita.
- Þegar eldhúsið byrjar að ilma af bökunarkryddi er vatninu bætt við og látið sjóða á lágum hita í 20 mínútur.
- Á meðan eru sykur, salt og perubitar sett í skál og nuddað vel saman svo sykurinn dragi vökvann úr perunni og allt verður að perukenndri klessu í skálinni.
- Hellið að lokum kryddvatninu í gegnum sigti í peruskálina og hrærið vel þar til allur sykur er bráðinn.
- Sigtið í annað sinn perubitana úr sírópinu og þá er það klárt!
- Geymist í tvær vikur í kæli.
**Þurrkaðar perur
- Pera skorin mjög þunnt og lögð á bökunarpappír í ofn á 80°C í þrjár til fjórar klukkustundir þar til peran er orðin þurr.
Glas Glas á fæti
Skraut Þurrkuð pera
Þessa uppskrift, sem og aðrar, má finna í blaðinu Hátíðarmat frá Hagkaup.
Ivan Svan rekur einn skemmtilegasta skóla landsins, Kokteilaskólann.
mbl.is/Eyþór