Hvassahraun. Eigendur jarðarinnar hafa sett hana í sölu á ný en umræða hefur verið uppi um að byggja þarna nýjan flugvöll fyrir innanlandsflugið, í stað Reykjavíkurflugvallar. Tvö tilboð hafa borist en báðum verið hafnað.
Hvassahraun. Eigendur jarðarinnar hafa sett hana í sölu á ný en umræða hefur verið uppi um að byggja þarna nýjan flugvöll fyrir innanlandsflugið, í stað Reykjavíkurflugvallar. Tvö tilboð hafa borist en báðum verið hafnað. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jörðin Hvassahraun á norðanverðum Reykjanesskaga er komin í söluferli.

Magnús Leópoldsson fasteignasali segir tvö tilboð hafa borist en þau verið felld. Ekkert ásett verð er á jörðinni og landeigendur í félaginu Sauðafelli hafa óskað eftir tilboðum.

Jörðin, sem er um 2.200 hektarar að flatarmáli, hefur mikið verið í umræðunni síðustu misserin varðandi hvort þar eigi að byggja nýjan innanlandsflugvöll í stað Reykjavíkurflugvallar.

Guðlaugur Jónasson, stjórnarformaður Sauðafells, segir við Morgunblaðið að jörðin hafi áður verið í sölu en söluferli sé nú virkt á ný. Spurður segist Guðlaugur ekki telja miklar líkur á að flugvöllur muni rísa í Hvassahrauni.

„Líkur á flugvelli hafa minnkað vegna eldsumbrota á Reykjanesinu, hvað sem verður í framtíðinni veit maður náttúrulega ekki,” segir hann og bætir við að hann sjái fyrir sér að kannski væri hægt að setja upp aðstöðu fyrir þyrlur sem gætu þjónustað ferðamenn.

Vatnsútflutningur og landeldi

„Við teljum vera gríðarmikil verðmæti á svæðinu, sérstaklega í vatnsauðlindinni sem er þarna,” segir Guðlaugur og reiknar með að áhugasamir kaupendur myndu helst vilja nýta auðlindirnar.

Að sögn Guðlaugs hafa rannsóknir á svæðinu leitt í ljós mikið magn af fersku neysluvatni, sem gæti annað allt að 150 þúsund manna byggð.

Guðlaugur segir svæðið henta þeim sem vilja ráðast í vatnsútflutning, landeldi sé annar möguleiki. Hann bendir einnig á að jörðin teygi sig inn á jarðhitasvæði, ekki sé ólíklegt að jarðhiti gæti fundist syðst á spildunni.

„Ef einhvern tímann verður áhugi á flugstarfsemi þá er það einnig möguleiki en það eru hverfandi líkur á því,” segir Guðlaugur.

Drífa Lýðsdóttir
drifa@mbl.is