Ellefu deilur eru á borði ríkissáttasemjara í dag samkvæmt upplýsingum frá embættinu, þar af fimm deilur við opinbera viðsemjendur.

Annars vegar ræða Lækna-, Ljósmæðra- og Tollvarðafélög Íslands nú við samninganefnd ríkisins og hins vegar Starfsgreinasambandið og fagfélögin við samninganefnd sveitarfélaga.

Samninganefndir Sameykis og ríkisins undirrituðu nýlega fyrsta kjarasamninginn á opinberum markaði í kjaralotunni. Þá undirrituðu fulltrúar ellefu aðildarfélaga BSRB í kjölfarið samninga sem fela í sér sambærilegar launahækkanir og samið var um á almennum vinnumarkaði fyrr á árinu, þar á meðal fulltrúar Landssambands lögreglumanna, en félagsmenn felldu síðar samninginn í atkvæðagreiðslu. Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM segir Ljósmæðrafélagið hafa ákveðið að vísa deilu sinni til ríkissáttasemjara þar sem ákveðnar flækjur séu í þeirra samtali en önnur félög ræða við sína viðsemjendur; ríki, borg og önnur sveitarfélög.

Lítið að gerast hjá ljósmæðrum

Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, segir ágreininginn snúast um grunnröðun ljósmæðra. Hún segir stofnanirnar vilja lækka ljósmæður áður en starfsþróunarkerfi verði innleitt samkvæmt úrskurði gerðardóms frá 2018. „Ég er ekki tilbúin að lækka grunnröðun ljósmæðra til að innleiða starfsþróunarkerfið. Ég get bara ekki skrifað upp á það.”

Unnur segir stofnanasamninga almennt orðna mjög gamla, þann elsta frá 2006 en yngsta frá 2018 ef undan eru skildir stofnanasamningar við Landspítalann.

Stofnanasamninga segir hún æskilegt að uppfæra á tveggja ára fresti. Hún segir lítið að gerast í viðræðunum og að hún hafi á tilfinningunni að viðsemjendur félagsins vilji kæla samtalið og taka það aftur upp í haust. Hún segir félagið ekki tilbúið að sofa á samtalinu fram yfir sumarfrí.

„Það er komin rosaleg óánægja í stéttina og okkur finnst þetta vera komið út í algjöra vitleysu, nú erum við búin að vera í þrjá mánuði inni hjá ríkissáttasemjara án þess að ná að klára þetta. Engin umræða hefur farið fram um miðlæga kjarasamninginn, aðeins þetta sérmál.”

Ólafur Pálsson
olafur@mbl.is