Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá KR og tekur formlega til starfa þann 1. ágúst. Óskar Hrafn var ráðinn í starf sem ráðgjafi knattspyrnudeildar félagsins í síðasta mánuði eftir að hafa látið af störfum sem þjálfari karlaliðs Haugasunds, sem leikur í norsku úrvalsdeildinni, í maí. Rúnar Kristinsson var síðast yfirmaður knattspyrnumála hjá KR frá 2008 til 2009.
Hafsteinn Már Sigurðsson , landsliðsmaður í blaki, hefur skrifað undir samning við Habo, sem leikur í sænsku úrvalsdeildinni. Hafsteinn Már er uppalinn hjá Vestra en hefur síðustu tvö tímabil leikið með Aftureldingu. Hann var valinn besti Íslendingurinn á síðasta tímabili er Afturelding komst alla leið í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins en tapaði þar gegn Hamri. Hafsteinn Már hefur tvisvar verið valinn í draumalið úrvalsdeildarinnar hérlendis og leikið með íslenska landsliðinu undanfarin þrjú ár.
Riðlakeppni Ameríkubikars karla í knattspyrnu, Copa América, lauk í fyrrinótt þegar Brasilía og Kólumbía gerðu jafntefli, 1:1, í D-riðlinum. Raphinha skoraði mark Brasilíu og Daniel Munoz mark Kólumbíu. Brassinn Vinícius Júnior fékk gult spjald í leiknum og tekur út leikbann í átta liða úrslitum. Kólumbía vann D-riðilinn á meðan Brasilía gerði sér annað sætið að góðu. Kosta Ríka vann svo Paragvæ 2:1 í leik sem hafði enga þýðingu í riðlinum. Í átta liða úrslitum mætast Argentína og Ekvador, Venesúela og Kanada, Kólumbía og Panama og loks Úrúgvæ og Brasilía.
Breski hjólreiðakappinn Mark Cavendish vann fimmtu dagleið Frakklandshjólreiðanna, Tour de France, í gær. Með sigrinum er Cavendish búinn að vinna 35 dagleiðir í Frakklandshjólreiðunum, fleiri en nokkur annar í sögunni. Með sigrinum tók Cavendish fram úr belgísku goðsögninni Eddy Merckx sem vann 34 dagleiðir á ferli sínum á 7. og 8. áratugnum.
Körfuknattleiksdeild Hattar hefur samið við danska bakvörðinn Adam Heede-Andersen um að leika með liðinu á næsta tímabili. Heede-Andersen, sem fagnar 28 ára afmæli sínu í dag, kemur frá Værløse Blue Hawks í heimalandinu.
Merih Demiral , hetja Tyrklands í 2:1-sigri á Austurríki í 16-liða úrslitum Evrópumóts karla í knattspyrnu á þriðjudagskvöld, gæti verið í vandræðum vegna þess hvernig hann fagnaði síðara marki sínu í leiknum. Demiral fagnaði með svokallaðri „úlfakveðju” sem vísar til pólitísku hreyfingarinnar Gráu úlfanna, sem eru þjóðernissinnuð hægriöfgasamtök sem leggja áherslu á yfirburði Tyrkja. UEFA rannsakar nú fagnið og metur hvort hann hafi sýnt af sér óviðeigandi hegðun, sem gæti leitt til sektar og/eða leikbanns. Verði Demiral úrskurðaður í leikbann missir hann af leik Tyrklands gegn Hollandi í átta liða úrslitum á laugardag.