Bjarni Benediktsson
Bjarni Benediktsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Maskína birti könnun um fylgi flokka og stuðning við ríkisstjórnina.

Maskína birti könnun um fylgi flokka og stuðning við ríkisstjórnina. Forsætisráðherrann Bjarni Benediksson getur fagnað því að Sjálfstæðisflokkur reisti sig eilítið. Sömuleiðis jókst ánægja með störf ríkisstjórnarinnar ögn og óánægja dalaði, en það hefur ekki gerst síðan 2022.

Hinir stjórnarflokkarnir eru hins vegar enn í tómu tjóni; Vinstri grænir allir dottnir af þingi og hálft ráðherralið Framsóknar, en stuðningur við ríkisstjórnina dræmur. Helst að stjórnin geti huggað sig við að ríflega fjórðungur svarenda tók ekki afstöðu til hennar.

Einnig var spurt um frammistöðu stjórnarandstöðunnar og þó ánægja með stjórnina sé mjög hófleg reyndust fjórðungi færri ánægðir með stjórnarandstöðuna, aðeins 12% og rúm 39% beinlínis óánægð með hana.

Það má vera Kristrúnu Frostadóttur , formanni Samfylkingarinnar, áhyggjuefni að stjórnarandstaðan eigi ekki meiri hljómgrunn meðal kjósenda, sem eru óánægðir með ríkisstjórnina. Aðeins 21% stuðningsmanna Samfylkingar eru ánægðir með stjórnarandstöðuna, en 26% þeirra óánægðir.

Þessar niðurstöður Maskínu eru því ekki einkamál stjórnarflokka eða stjórnarandstöðu, heldur mögulega til marks – líkt og víðar – um vaxandi vantrú á stjórnmálunum, verkefnavali og hvernig þau valda þeim. Það þurfa allir flokkar að taka til sín.